Katie Ledecky sú fyrsta til að vinna tólf HM-gull Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júlí 2017 16:56 Katie Ledecky er óstövandi í löngu skriðsundunum. Vísir/Getty
Bandaríska sundkonan Katie Ledecky endurskrifaði sögu heimsmeistaramótsins í sundi í dag þegar hún tryggði sér öruggan sigur í 1500 metra skriðsundi. Katie Ledecky varð með þessu fyrsta konan sem nær að vinna tólf gullverðlaun á HM í sundi en hún bætti met landa síns Missy Franklin. Þetta voru þriðju gullverðlaun hennar á Heimsmeistaramótinu í Búdapest en hún hafði áður unnið 400 metra skriðsund og hjálpar bandarísku sveitinni að vinna 4 x 100 metra boðsund. Katie Ledecky er hvergi nærri hætt á þessu móti því hún fær möguleika á því að bæta við þremur gullverðlaunum áður en heimsmeistaramótið klárast. Þá væri hún komin með fimmtán gull samtals. Katie Ledecky hélt upp á tvítugsafmælið sitt í marsmánuði og ætti því að hafa tækifæri til að keppa á mörgum heimsmeistaramótum til viðbótar. Hún vann einnig fimm gull og eitt silfur á Ólympíuleikunum í Ríó og er nú handhafi heimsmetanna í 400, 800 og 1500 metra skriðsundi en alls hefur Katie Ledecky sett þrettán heimsmet á ferlinum.Heimsmeistaragull Katie Ledecky til þessa:HM 2013 í Barcelona á Spáni - 4 gull 400 metra skriðsund 800 metra skriðsund 1500 metra skriðsund 4 x 200 metra boðsundHM 2015 í Kazan í Rússlandi - 5 gull 200 metra skriðsund 400 metra skriðsund 800 metra skriðsund 1500 metra skriðsund 4 x 200 metra boðsundHM 2017 í Búdapest í Ungverjalandi - 3 gull 400 metra skriðsund 1500 metra skriðsund 4 x 100 metra boðsund
Sund Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Setti niður fjórtán þrista: „Aldrei verið mikill skorari“ Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Skömmustulegir landsliðsmenn og Man. Utd vann fótboltaleik Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Guðmundsdætur verða áfram í KR Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn Geta unnið tíunda leikinn í röð í undankeppni EM „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Bjóða upp á barna FanZone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Jake Paul lofar að hætta í hnefaleikum ef hann tapar fyrir Doumbe FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Dagskráin í dag: Meistaradeildarveisla í allt kvöld Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas Sjá meira