Flúði úr bíl á ferð til að komast undan árás Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 28. september 2017 23:15 Hinn ákærði í málinu, sem fæddur er árið 1984 á að baki sakaferil allt aftur til ársins 2002. Vísir/Stefán
Karlmaður á fertugsaldri var dæmdur í 12 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir þrjár líkamsárásir, meðal annars gegn unnustu sinni og forstöðumanni þjónustukjarna í Rangárseli þar sem maðurinn sætti öryggisvistun á vegum Reykjavíkurborgar. Unnustan segist hafa upplifað árásina þannig að hennar síðasta stund væri runnin upp. Árásin í þjónustukjarnanum átti sér stað í júní á þessu ári. Þrír starfsmenn, þar á meðal forstöðukonan, höfðu farið í íbúð mannsins til að ræða við hann. Skallaði hann þá forstöðukonuna, sló og kýldi í líkama hennar og höfuð nokkrum sinnum. Þá greip hann og togaði í hár hennar og fleygði henni til með þeim afleiðingum að konan féll í jörðina og hlaut töluverð eymsli á andliti og líkama. Þá veittist hann einnig að öðrum starfsmanni og sló og kýldi hann. Maðurinn var handtekinn í kjölfar málsins og náðist atvikið á öryggismyndavél. Starfsmennirnir leituðu á bráðamóttöku. Var meðal annars tekið blóð úr brotaþolunum þremur til rannsóknar fyrir lifrarbólgu C og HIV þar sem maðurinn hafði hrækt á þau. Þremur dögum síðar hótaði hann forstöðukonunni og fjórum öðrum starfsmönnum öryggisvistunarinnar lífláti. Við upphaf aðalmeðferðar játaði maðurinn að hafa ráðist gegn konunni og öðrum starfsmanninum. Hann neitaði að hafa ráðist á þann þriðja. Forstöðukonan sagðist fyrir dómi hafa upplifað atvikið þannig að hennar síðasta stund væri runnin upp. Hún óskaði nafnleyndar við meðferð málsins þar sem hún óttaðist manninn, en gerði þó ráð fyrir að þurfa að þjónusta manninn aftur að gengnum dómi.Sagði áverka vera eftir hund Þann 10. desember 2016 var lögreglan kvödd að Grettisgötu í Reykjavík vegna konu sem þar væri í miklu uppnámi. Var það unnusta mannsins sem sagði að hann hefði lagt á hana hendur í nærliggjandi húsi. Samkvæmt skýrslu lögreglu var konan í miklu uppnámi og greinilega hrædd. Hún hafi verið með áverka á hægri kjálka, blóðug hægra megin á andliti og með sár á milli baugfingurs og löngutangar hægri handar. Ákærði var handtekinn utan við framangreint hús og neitaði hann að hafa „lamið“ brotaþola. Fram kemur í skýrslunni að brotaþoli hafi hörfað undan ákærða og hefði mátt sjá að hún var óttaslegin. Ákærði var yfirheyrður af lögreglu daginn eftir atvikið og neitaði hann að hafa beitt konuna ofbeldi. Hann bar jafnframt að hundur hefði bitið brotaþola í andlitið og hefði hún hlotið áverka af því. Konan breytti vitnisburði sínum fyrir dómi. Þá sagði hún að hún hefði óskað aðstoðar lögreglu við að ná í veski sitt sem hafði orðið eftir í íbúðinni. Þá sagði hún að hundur hefði ráðist á hana í íbúðinni og að áverkana á andliti hennar mætti rekja til þess.Brotaþoli flúði úr bíl á ferð Þriðji liður ákærunnar snýr að líkamsárás og þjófnaði í nóvember 2016. Þar veittist hann að manni í bíl á leið á Reykjavíkurflugvöll, sló hann ítrekað hnefahögg í andlit, höfuð og líkama og braut brotaþolinn rúðu í bílnum og fór úr honum á ferð til að komast undan árásinni. Maðurinn hlaut heilahristing, tognun og ofreynslu á lendarhrygg, og ýmsa aðra áverka í kjölfar atviksins. Brotaþolinn sagði í samtali við lögreglu að honum hafi verið haldið föngum í bílnum en náð að komast út með fyrrnefndum hætti. Þá hafi maðurinn tekið af honum húslyklana og hann sagðist óttast að hann myndi tæma íbúðina sína. Lögreglan fylgdi brotaþola að heimili hans og stóðu útidyrnar þar opnar. Þá sagði hann að ýmsa muni vantaði í íbúðina, til dæmis tvær fartölvur, sjónvarpstæki, vodkaflösku og tvö hangikjötslæri. Hinn ákærði í málinu, sem fæddur er árið 1984, var sem fyrr segir dæmdur í 12 mánaða fangelsi. Hann á að baki sakaferil allt aftur til ársins 2002. Hann hefur þrívegis hlotið refsidóma fyrir brot gegn valdstjórninni og þá eru líkamsárásar- og þjófnaðarbrot hans margítrekuð.
Dómsmál Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira