Með fjórfalt fleiri farþega um borð nærri Reykjavík en leyfilegt Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 25. október 2017 13:04 Varðskipið Þór Vísir/Anton
Skipstjóri farþegabáts sem var á sjó nærri Reykjavík í gærkvöldi með útrúnnið haffærisskírteini og of marga farþega um borð miðað við það leyfi verður kærður vegna málsins. 45 farþegar voru um borð en hið útrunna leyfi heimilaði aðeins 12 farþega. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst á ellefta tímanum í gærkvöld ábending um að báturinn væri á sjó nærri Reykjavík. Varðskipið Þór var í grenndinni og óskaði stjórnstöðin eftir því að það kannaði málið. Um leið var lögreglu gert viðvart og hún beðin um að taka á móti bátnum þegar hann kæmi til hafnar. Um ellefuleytið í gærkvöldi sást báturinn í ratsjá varðskipsins en þá var hann rétt norðvestur af Engey á leið til hafnar. Báturinn var ekki með kveikt á AIS-staðsetningarbúnaði og hafði ekki tilkynnt sig úr höfn. Léttbátur varðskipsins var sendur í átt að farþegabátnum, fóru tveir stýrimenn varðskipsins um borð og fylgdu bátnum til hafnar þar sem lögregla tók á móti honum. Um borð voru 45 farþegar en samkvæmt þágildandi farþegaleyfi bátsins var aðeins heimild til að hafa tólf farþega. Fjórir voru í áhöfn en aðeins einn var lögskráður, sá var háseti. Hinir voru einungis með hluta af nauðsynlegum réttindi. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að Landhelgisgæslan liti þetta mál alvarlegum augum. „Báturinn var án haffæris, lögskráningu áhafnar ábótavant, báturinn með óvirkan AIS-búnað og tilkynnti sig ekki úr höfn. Síðast en ekki síst voru næstum því fjórum sinnum fleiri farþegar um borð en farþegaleyfið heimilaði. Ekki þarf að hafa mörg orð um hve alvarlegt ástand hefði getað skapast ef báturinn hefði lent í hafsnauð en bjargir hefðu að líkindum verið mun lengur berast sökum þess að hann var hvorki í ferilvöktun né hafði hann tilkynnt sig úr höfn.“
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira