Ég held að EM verði mjög skemmtilegt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. október 2017 06:00 Hrafnhildur Lúthersdóttir heldur áfram að vinna til verðlauna í sundinu og bæta við farsælan feril. vísir/eyþór
Sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir synti sig inn á enn eitt stórmótið um helgina þegar hún náði lágmörkum í fjórum greinum á EM í Danmörku í desember. Hrafnhildur hefur unnið sér inn þátttökurétt í 50, 100 og 200 metra bringusundi auk 100 metra fjórsunds. Þetta var ein svona risakeppnishelgi fyrir bestu bringusundskonu Íslands sem tók vel á en sýndi um leið að hún á enn heima með þeim bestu í sundlauginni.Mjög gott miðað við æfingarnar „Árangurinn var mjög góður miðað við æfingarnar og hvar ég er stödd á tímabilinu. Það var skemmtilegt að ná lágmörkunum. Ég held að EM verði mjög skemmtilegt og sterkt mót í desember. Það verður gaman að fá að taka þátt,“ segir Hrafnhildur. Hrafnhildur flutti heim eftir Ólympíuleikana í Ríó og var farin að vinna með sundæfingunum en er nú aftur komin í skóla.Orðin nemi í HÍ „Ég er hætt að vinna hjá Iceland Travel en er byrjuð í lífeindafræði í HÍ og að þjálfa yngri sundkrakka fjórum sinnum í viku. Það geta verið erfiðir dagar en ég hef gaman af þessu og þetta gengur vel hingað til,“ segir Hrafnhildur. Hún hélt upp á 26 ára afmælið í haust og er ekkert að gefa eftir. „Ég er auðvitað orðin aðeins eldri svo að þetta er aðeins erfiðara en fyrir fimm árum,“ segir Hrafnhildur í léttum tón. „Ekki eins mikil orka kannski en ég hef alltaf jafn gaman af þessu og sérstaklega þegar það gengur vel eins og núna, þá er ekki annað hægt en að brosa og njóta,“ segir Hrafnhildur. Árið 2017 er ekki búið að vera eins og árin á undan. „Þetta ár hefur verið öðruvísi en á góðan hátt. Ég er að æfa eins og ég vil, hef gaman og það gengur greinilega alveg vel. Ég er ánægð með árangurinn í sumar og hingað til. Ég get allavega alls ekki kvartað. Ég er að æfa eitthvað öðruvísi en það er gaman og ég er í góðra vina hópi sem hjálpar mikið. Klaus þjálfari er náttúrlega líka mjög góður með að leyfa mér að gera það sem ég vil og við vinnum vel saman þannig að ef ég þarf að æfa öðruvísi, taka langa daga eða synda fyrr en venjulega, þá er hann alltaf til staðar og tilbúinn að hjálpa,“ segir Hrafnhildur en samstarf hennar og Klaus-Juergen Ohk gengur afar vel sem fyrr.Hrafnhildur keppir í fjórum greinum á EM í Danmörku í desember.vísir/stefánVonar að fleiri nái inn Hún vonast eftir því að fleiri íslenskum sundmönnum takist að vinna sér keppnisrétt á EM sem fer fram í Kaupmannahöfn 13. til 17. desember. „Núna taka við fleiri æfingar og Íslandsmeistaramótið er svo eftir þrjár vikur. Ég hlakka til og held að það verði mjög gaman, þá vona ég að ennþá fleiri nái inn á EM svo að við getum verið stórt og gott lið,“ segir Hrafnhildur. Hún var mjög nálægt Íslandsmetinu sínu í 50 metra bringusundi um helgina. „Ég myndi kannski segja það að ég væri að einbeita mér meira að sprettsundinu núna en ég hef nú alltaf verið ágætur sprettari. Ég var nú tíunda í heiminum í sumar í 50 bringu sem er góður árangur. Ég get alveg ennþá synt 200 bringu eins og ég sýndi núna um helgina en er einmitt kannski ekki að æfa eins mikið fyrir það eins og áður,“ segir Hrafnhildur. Hún hefur tekið upp á því að sýna öðrum hvernig maður nær heimsklassa árangri í bringusundi á sérstökum námskeiðum.Námskeiðið vakti mikla lukku „Ég er búin að halda eitt námskeið og það vakti mikla lukku og krakkarnir voru mjög ánægðir með það. Það var fullt hús og við vorum öll að læra saman. Svo er þetta líka góð leið fyrir krakkana í öðrum liðum til að ná saman og kynnast. Ég ætla að halda áfram með þetta og fer vonandi bráðum með þetta út á land líka til að hjálpa krökkum þar líka,“ segir Hrafnhildur að lokum.
Sund Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Dagskráin í dag: Meistaradeildarveisla í allt kvöld Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga Sigurganga Hauka heldur áfram Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Áhugaverð ummæli Teits hafa hrist upp í hlutunum Verður líkamleg og andleg barátta Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Tímabilinu lokið hjá Viktori Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Sjá meira