Tímagarðurinn 12. desember 2017 10:30 Tímagarðurinn er bráðskemmtileg og vel skrifuð bók og Guðmundur snilldarstílisti sem tekst afbragðsvel að blanda saman trega og húmor, að mati Viðars Hreinssonar. ANTON BRINK „
Tímagarðurinn fjallar um Brynjar, ungan mann sem hefur lent í hremmingum og ástvinamissi, og er áttavilltur og stefnulaus í lífinu. Hann vaknar upp eftir misheppnað næturævintýri í Hveragerði en þá grípa forlögin inn í. Hann fer í ferðalag með móðurbróður sínum og í ferðinni uppgötvar hann fegurðina í lífinu á ný,“ segir Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur en Tímagarðurinn er ný bók eftir Guðmund S. Brynjólfsson. „Tímagarðurinn er í raun vegabók og varahlutir í gamla bíla koma mikið við sögu. Þeir frændur hitta stórskemmtilegt fólk á leið sinni og frægur uppgjafaróni og heimsborgari slæst í för með þeim. Það er dálítið tvist í þessu að láta tvo uppgjafalúsera kenna stráknum að meta lífið upp á nýtt,“ upplýsir Viðar og bætir við að sér finnist bókin hlýleg og notaleg með djúpum undirtón sem vegsami fjölbreytni mannlífsins. „Þar leynist fegurðin, kannski frekar en í fagurfræðinni sem strákurinn hugðist læra. Þetta er bráðskemmtileg og vel skrifuð bók, enda er Guðmundur snilldarstílisti. Honum tekst afbragðsvel að blanda saman trega og húmor, eins og hans er von og vísa. Mannlýsingarnar í bókinni eru líka mjög vel dregnar upp og auka þannig við ánægjuna af lestrinum.“ Viðar segir titil bókarinnar, Tímagarðurinn, eiga vel við. „Tíminn er umgjörð um mannlífið og strákurinn áttar sig á því um leið og hann öðlast skilning á hvar hann stendur í lífinu. Hann er úr Garðinum og sagan fjallar líka um að rækta garðinn sinn."
Mest lesið „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Lífið Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Lífið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Alan Carr á Íslandi Lífið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Karlmennskan rís úr öskunni Lífið Drengurinn sem dó Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira