Liðþjálfinn sem gerðist liðhlaupi Stefán Ó. Jónsson skrifar 12. desember 2017 07:09 Charles Jenkins leiðir hér eiginkonu sína við komuna til Japans árið 2004. Þau voru neydd til að gifta sig í haldi Norður-Kóreumanna árið 1980. Vísir/Getty
Charles Jenkins, fyrrverandi liðþjálfi hjá bandaríska hernum, er látinn - 77 ára að aldri. Banamein hans var hjartagalli. Jenkins komst í heimsfréttirnar á sjöunda áratugnum þegar hann og þrír aðrir bandarískir hermenn gerðust liðhlaupar og settust að í Norður-Kóreu. Hann sat á bakvið lás og slá í um fjóra áratugi en var jafnframt kvikmyndastjarna í landinu um tíma. Jenkins var sá eini sem látinn var laus en hinir þrír eru allir taldir hafa látist í Norður-Kóreu. Ótrúlegt lífshlaup Jenkins er rakið á vef breska ríkisútvarpsins nú í morgunsárið. Hann ákvað árið 1965, þegar hann dvaldi í bandarískri herstöð í Suður-Kóreu skammt frá landamærunum, að hlaupast á brott og reyna að komast til Norður-Kóreu af ótta við að vera sendur til þátttöku í Víetnamstríðinu sem þá geisaði. Jenkins lýsti því í viðtölum og ævisögu sinni hvernig hann hafði séð fyrir sér að sækja um hæli í Rússlandi eftir að hann væri kominn yfir landamærin og vonaðist hann til að komast aftur til Bandaríkjanna í fangaskiptum milli ríkjanna. Hann segist eina kalda janúarnótt hafa drukkið í sig kjark og gengið yfir landamærin þar sem hann hafi gefist upp fyrir norður-kóreskum hermönnum. Hann var 24 ára gamall.Charles Jenkins var látinn laus árið 2004. Hér sést hann læra á tölvu í bandarískri herstöð.Vísir/GettyHann hafi þó ekki fengið hæli í Rússlandi, ekki frekar en félagar hans þrír. Þess í stað hafi hann verið settur í fangelsi. Mennirnir voru neyddir til að læra kenningar eilífðarleiðtogans Kim Il-sung og var gert að kenna ensku og leggja stund á þýðingar fyrir stjórnvöld. Þeir skutust þó upp á norður-kóreska stjörnuhimininn um tíma þegar þeir léku vestræn illmenni í nokkrum áróðursmyndum. Jenkins leið miklar pyntingar í fangelsinu og lýsir hann því meðal annars hvernig hann var reglulega barinn. Þá fjarlægðu fangaverðir húðflúr sem skartaði - án deyfingar. Jenkins segir sársaukan hafi verið djöfullegan.Þvingað hjónaband Hann var neyddur til að giftast eiginkonu sinni árið 1980 en henni hafði verið rænt og var ætlað að kenna norður-kóreskum njósnurum japönsku. Þau eignuðust tvær dætur. Eiginkonu hans var sleppt úr haldið árið 2002 eftir samningaviðræður Norður-Kóreu og Japans og var Jenkins einnig leyft að yfirgefa landið, ásamt dætrum þeirra, tveimur árum síðar. Við komuna til Japans ákvað Jenkins að gefa sig fram við bandaríska herinn og var hann dæmdur í 30 daga fangelsisvist fyrir liðhlaupið - 40 árum eftir að hann fór drukkinn yfir landamærin. Hann var lengi að aðlagast nútímalifnaðarháttum og sagðist finnast það undarlegt að sjá konur í hernum og svarta lögreglumenn. Þá var heilsa hans ekki upp á marga fiska það sem eftir lifði ævinnar - sem rakið er beint til verunnar í norður-kóreska fangelsinu.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira