Innlent

Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili

Árni Sæberg skrifar
Piotr Sójka var 39 ára þegar hann lést.
Piotr Sójka var 39 ára þegar hann lést.

Maðurinn sem lést í Stuðlagili á mánudag hét Piotr Sójka og var 39 ára gamall pólskur ríkisborgari. Piotr var búsettur í Póllandi en var á ferðalagi hérlendis.

Í fréttatilkynningu þess efnis frá Lögreglunni á Austurlandi segir að tildrög slyssins séu til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Austurlandi og miði vel. 

„Hugur okkar er hjá aðstandendum Piotr og er þeim vottuð samúð okkar.“


Tengdar fréttir

Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur

Karlmaður á fertugsaldri sem lést þegar hann féll út í Jökulsá á Brú í Stuðlagili í vikunni er sagður hafa verið pólskur. Pólskur fjölmiðill greinir frá þessu.

Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert

Auðdís Tinna Hallgrímsdóttir leiðsögumaður á Austurlandi varð vitni að því í gær þegar ferðamaður drukknaði við Stuðlagil. Hún fer daglega með ferðamenn en segir aðstæður óöruggar og verulega þörf á betri fallvörnum sem og björgunartækjum við gilið. Ferðamaðurinn féll ofan í ána.

„Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“

Kafarar fundu lík manns, sem féll í Stuðlagil í gærkvöldi, í hyl í Jöklu skömmu eftir að þeir fóru ofan í ána. Lögreglustjórinn á Austurlandi segir gott að maðurinn hafi fundist áður en myrkur skall á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×