Innlent

Til­laga um að fækka vara­for­setum felld

Eiður Þór Árnason og Tómas Arnar Þorláksson skrifa
Miðill
Vísir/anton brink

Tillaga um að fækka varaforsetum ASÍ úr þremur í einn var felld á þingi sambandsins með 60 prósentum atkvæða. Tvo þriðju atkvæða þurfti til að ná breytingunni í gegn en 40 prósent kjósenda greiddu atkvæði gegn tillögunni sem hefur reynst umdeild. Þetta varð ljóst rétt í þessu.

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, studdi breytinguna og telur erfitt að sjá að þetta ferli hafi verið sameinandi fyrir hreyfinguna. Hún og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður VR, bjóða sig fram til varaforseta ASÍ á morgun. Sólveig hafði gefið út að félagið myndi endurskoða stöðu sína innan ASÍ ef breytingin yrði samþykkt.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, talaði um það áður en niðurstöðurnar voru kynntar að hann teldi mikilvægt að þingið kæmi út sem ein heild af þinginu og að ekki yrði ráðist í þessa breytingu að þessu sinni.

Finnst þér þessi tillaga um að fækka varaforsetum ekki til þess gerð að lægja öldurnar?

„Nei, alls ekki,“ segir Vilhjálmur. Þegar Efling, eitt stærsta verkalýðsfélag landsins með sína 56 fulltrúa á þingi ASÍ, sé ósátt þá sé eðlilegt að „hlusta og reyna frekar að leysa þetta innbyrðis og skoða hvort við getum fundið lausn á málunum.“

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×