Úr lausu lofti gripið? Ólafur Stephensen skrifar 4. janúar 2018 07:00 Íslandsmetið í skattheimtu er tollur á franskar kartöflur upp á 76%. Þetta er hæsti verðtollurinn í íslenzku tollskránni. Það er alþekkt að þessum tolli er ætlað að vernda íslenzkan landbúnað. Þrátt fyrir þessa kröftugu verndaraðgerð er hins vegar ljóst að sáralítið innlent hráefni er notað í innlenda framleiðslu á frönskum kartöflum, auk þess sem umframeftirspurn er eftir íslenzkum kartöflum. Að endingu missir verndin svo marks því að í rauninni verndar tollurinn ekki íslenzkan landbúnað, heldur eitt eða tvö innlend iðnfyrirtæki sem framleiða franskar kartöflur, að stórum hluta úr innfluttu hráefni. Verndartollar fyrir iðnað áttu að heyra sögunni til.Tollvernd hét það á Alþingi Það hefur aldrei farið neitt á milli mála að þessum ofurtolli er af hálfu stjórnvalda ætlað að vera verndartollur. Í frumvarpi með lögum sem kváðu á um þennan toll árið 1995 er tollvernd nefnd sex sinnum og í sérstökum kafla frumvarpsins sem heitir nýir tollar kemur fram að „Tollvernd komi einungis í stað verndar sem hingað til hefur verið í höftum og sérgjöldum (…) Þannig verði gert ráð fyrir að tollar samanstandi af verðjöfnun vegna verðmunar sem er á heimsmarkaðsverði vörunnar og heildsöluverði samsvarandi innlendrar vöru auk 30% tollverndar.“ Í umræddu frumvarpi segir líka: „Tollar í stað sérgjalda á unnum landbúnaðarvörum, fóðri og kartöflum og vörum úr þeim. Gert er ráð fyrir því að sú álagning sem áður var falin í verðjöfnunargjaldi á unnar landbúnaðarvörur sem fluttar eru inn frá ríkjum utan fríverslunarsamninga, fóðurgjaldi og jöfnunargjaldi á kartöflur verði framvegis í formi venjulegra tolla.“ Í nefndaráliti efnahags- og viðskiptanefndar um málið segir: „Mikilvægustu breytingar frumvarpsins snerta skilyrði til innflutnings á landbúnaðarafurðum sem ekki verður framar stjórnað með bönnum og höftum. Í staðinn verða teknir upp tollar og er meginviðfangsefni frumvarpsins að ákveða þá með þeim hætti að uppfylltar verði skuldbindingar samningsins og tilgangi hans fylgt fram en samtímis gætt hagsmuna innlendra framleiðenda matvöru.”Tollvernd hét það í dómssölum Í framsöguræðu þáverandi forsætisráðherra með umræddu frumvarpi kom fram í umfjöllun um rauntolla og verndarmarkmið: „Með þessu frv. er íslenskum landbúnaði tryggð nauðsynleg vernd á skýran hátt þannig að engin óvissa ríkir nú um starfsskilyrði landbúnaðarins að þessu leyti á næstu árum. Frá þessum tíma hafa forsætis- og landbúnaðarráðherrar ítrekað svarað fyrirspurnum um frönskutollinn með þeim hætti að telja má að það staðfesti að um sé að ræða verndartolla. Umræddur 76% tollur tók við af svokölluðu jöfnunargjaldi. Samkvæmt málatilbúnaði íslenzka ríkisins í Hæstaréttarmálinu nr. 427/1995 var því gjaldi ætlað að „jafna samkeppnisstöðu íslenskra framleiðenda gagnvart erlendum framleiðendum.“Tollvernd hét það í alþjóðasamningum Þessa tolls var einnig getið sem tolls á landbúnaðarvörur í aðildarviðræðum við ESB. Þá segir í skýrslu íslenzkra stjórnvalda við sama tilefni: „Varðandi tolla skal tekið fram að þeir eru lagðir á aðra framleiðslu en þá sem fellur undir framleiðsluvörur sem nefndar eru í spurningunni. Almennt er þetta gert til að verja markaðshlutdeild innlendrar framleiðslu en einnig til að skapa jafnt samkeppnisumhverfi fyrir fáein vinnslufyrirtæki með langa sögu.“ Fulltrúar íslenzka ríkisins hafa rætt þennan tiltekna toll á fleiri vígstöðvum. Þannig kom fulltrúi íslenzka ríkisins fyrir fastanefnd kanadíska þingsins um alþjóðaviðskipti, vegna fríverzlunarsamnings ríkjanna. Þar sagði hann: „...tollur á franskar kartöflur frá ESB er 76% en á kanadískar kartöflur verður lagður 46% innflutningstollur. Þetta eru varnarráðstafanir fyrir íslenskan landbúnað.“ Fulltrúi kanadíska ríkisins kom einnig fyrir nefndina og sagði þar: „Ef ég man rétt þá vorum við fyrsta ríkið til að fá tilslökun frá Íslandi á franskar kartöflur, því af einhverjum ástæðum þá er þetta mjög viðkvæmt mál á þeirra markaði [...] Ég bjóst ekki við að kartöflur væru stórmál á þeirra markaði en sú varð raunin.“Nú heitir það tekjuöflun Nýverið höfðuðu nokkur innflutningsfyrirtæki dómsmál gegn íslenzka ríkinu vegna tollsins á franskar kartöflur. Í málinu var á því byggt að þetta Íslandsmet í gjaldtöku stæðist ekki kröfur stjórnarskrár um málefnalega skattlagningu. Byggðist það einna helzt á því að gjaldtakan kæmist hvergi nærri því að ná því markmiði sem henni var ætlað, þ.e. að vernda íslenzkan landbúnað. Þá gerist hið óvænta. Íslenzka ríkið heldur því fram fyrir dómi að þessi gjaldtaka þjóni ekki því hlutverki að vernda íslenzkan landbúnað. Að sögn íslenzka ríkisins er gjaldtökunni ekki ætlað að vernda neitt. Íslandsmetið í tollum er því algerlega án tilgangs eða rökbundinnar afstöðu. Ofurtollurinn á franskar kartöflur er tilviljun. Þetta er samkvæmt íslenzka ríkinu bara almenn tekjuöflun og væntanlega bara hending að gjaldið sé ofurhátt og leggist bara á eina sérstaka vöru. Þá segir íslenzka ríkið að hugmyndir um annað séu „úr lausu lofti gripnar“ svo vitnað sé til málatilbúnaðar ríkisins. Það þýðir þá væntanlega að það sem haldið var fram í frumvarpi fyrir Alþingi, í framsöguræðu forsætisráðherra, í nefndarálitum þingsins, í aðildarviðræðum við ESB, fyrir þingnefndum annarra ríkja og af íslenzka ríkinu sjálfu í öðrum dómsmálum, sé loft. Krafan gagnvart stjórnvöldum er einföld. Annað hvort á íslenzka ríkið að hætta að leggja á ofurtolla sem það viðurkennir að ekkert verndi eða þá að hætta að halda því fram í dómsmálum sem er augljóslega rangt. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Ólafur Stephensen Mest lesið Það er flókið að eiga næstum 500 milljarða króna á Íslandi Þórður Snær Júlíusson Skoðun Níðingsverk Jón Daníelsson Skoðun Það er betra fyrir okkur öll að Háskóli Íslands efli fjarnám Darri Rafn Hólmarsson Skoðun Hættulegt tal Sjálfstæðisflokksins og Viðskiptaráðs Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Stríðsglæpir sem munu ekki gleymast! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Svansvottaðar íbúðir – fjárfesting í lífsgæðum Bergþóra Góa Kvaran Skoðun 5.maí Alþjóðadagur ljósmæðra Unnur Berglind Friðriksdóttir Skoðun Æji nei innflytjendur Davíð Aron Routley Skoðun Þegar rafmagn hættir að vera sjálfsagður hlutur Árni B. Möller Skoðun Þegar líða fer að jólum Ísak Hilmarsson Skoðun Skoðun Skoðun Við eigum ekki efni á vonleysi né uppgjöf Magnús Magnússon skrifar Skoðun Hingað og ekki lengra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hagsmunir heildarinnar - Kafli eitt: Tómlæti Íslendinga Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Þegar líða fer að jólum Ísak Hilmarsson skrifar Skoðun Svansvottaðar íbúðir – fjárfesting í lífsgæðum Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Hættulegt tal Sjálfstæðisflokksins og Viðskiptaráðs Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Þetta má ekki gerast aftur! - Álag á útsvar Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Meistaragráða í lífsreynslu Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar Skoðun Stjórnvöld, Óskar á heima hér! Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Dvel þú í draumahöll Hugrún Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Níðingsverk Jón Daníelsson skrifar Skoðun Umhverfi, heilsa og skólamáltíðir Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Æji nei innflytjendur Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Stríðsglæpir sem munu ekki gleymast! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Samstaða, kjarkur og þor Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Það er betra fyrir okkur öll að Háskóli Íslands efli fjarnám Darri Rafn Hólmarsson skrifar Skoðun Yfirfull fangelsi, brostið kerfi Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Þegar rafmagn hættir að vera sjálfsagður hlutur Árni B. Möller skrifar Skoðun Það er flókið að eiga næstum 500 milljarða króna á Íslandi Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Lýðræði og framtíð RÚV: Tími til breytinga? Erling Valur Ingason skrifar Skoðun 5.maí Alþjóðadagur ljósmæðra Unnur Berglind Friðriksdóttir skrifar Skoðun Endurnýjun hugarfarsins Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Ferðamenn: Vanmetnir skattgreiðendur í íslensku hagkerfi Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Góð vísa... Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Við höfum ekki efni á tvískinnungi SFS Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað getum við lært af Víetnamstríðinu? Einar Magnússon skrifar Skoðun Góður rekstur Mosfellsbæjar og framtíðin björt Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir ,Lovísa Jónsdóttir skrifar Skoðun Fristund.is fyrir öll - líka eldra fólk Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem skeytir engu Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Áskorun til ráðherra mennta- og barnamála og ráðherra menningarmála Anna Klara Georgsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Góður rekstur Mosfellsbæjar og framtíðin björt Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir ,Lovísa Jónsdóttir skrifar
Skoðun Áskorun til ráðherra mennta- og barnamála og ráðherra menningarmála Anna Klara Georgsdóttir skrifar