Óskabein næststærsti hluthafi Korta með tíu prósenta hlut Hörður Ægisson skrifar 10. janúar 2018 07:30 Kortaþjónustan þurfti á hlutafjáraukningu að halda til að koma í veg fyrir að fyrirtækið yrði sett í slitameðferð eða færi í gjaldþrot þegar breska flugfélagið Monarch fór í greiðslustöðvun í fyrra. Vísir/Stefán
Fjárfestingafélagið Óskabein, sem er meðal annars stór hluthafi í VÍS, er næststærsti einstaki eigandi Kortaþjónustunnar, á eftir Kviku banka, með tíu prósenta hlut en færsluhirðingarfyrirtækið var keypt af fjárfestingabankanum og hópi einkafjárfesta 1. nóvember í fyrra fyrir aðeins eina krónu. Hlutur Kviku í fyrirtækinu nemur um 41 prósenti en á meðal annarra hluthafa er félagið Res Limited, sem er í eigu Sigurðar Bollasonar fjárfestis, með tæplega sex prósenta hlut og þá eiga bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir, í gegnum eignarhaldsfélagið Frigus, liðlega fimm prósenta hlut. Í kaupsamningi milli Kviku og Kortaþjónustunnar, sem Markaðurinn hefur undir höndum, kemur fram að með „hliðsjón af núverandi fjárhagsstöðu fyrirtækisins“ hafi verið ákveðið að seljendur fengju eina krónu fyrir hlut sinn í félaginu. Samtímis kaupunum lagði Kvika og fjárfestahópurinn Kortaþjónustunni einnig til nærri 1.500 milljónir í nýtt hlutafé, eins og Markaðurinn hefur áður upplýst um, en fyrirtækið stóð frammi fyrir alvarlegum fjárhagsvanda í kjölfar greiðslustöðvunar breska flugfélagsins Monarch í byrjun október á síðasta ári. Kortaþjónustan var á meðal átta fyrirtækja sem sáu um færsluhirðingu fyrir Monarch. Í kaupsamningnum segir meðal annars að kaup og hlutafjáraukning fjárfestahópsins hafi verið nauðsynleg til að „koma í veg fyrir að fyrirtækið yrði sett í slitameðferð eða lögþvingað gjaldþrot“. Eftir greiðslustöðvun Monarch hafi Kortaþjónustan fengið á sig endurgreiðslukröfur (e. chargebacks) sem námu „verulegum fjárhæðum“ og valdið fyrirtækinu „alvarlegum fjárhagslegum erfiðleikum“. Svo Kortaþjónustan gæti haldið áfram rekstri var því þörf á hlutafjáraukningu og eins samkomulagi við alþjóðlegu kortafyrirtækin Mastercard og Visa um áframhaldandi aðild að uppgjörskerfum þeirra.Kortaþjónustan hafði tekið á sig áhættu með viðskiptunum við Monarch vegna fjármuna sem viðskiptavinir flugfélagsins höfðu greitt fyrir flugferðir sem það gat síðar ekki staðið við. Var fyrirtækið í þeim tilfellum í ábyrgð fyrir greiðslum sem höfðu farið beint til Monarch við kaup á farmiðum. Með hlutafjáraukningu fjárfestahópsins var rekstrarhæfi Kortaþjónustunnar tryggt og þá voru engin útistandandi mál gagnvart innlendum eða erlendum viðskiptavinum fyrirtækisins. Jóhannes Ingi Kolbeinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar og áður stærsti hluthafi félagsins, hafnaði því aðspurður í frétt Fréttablaðsins 4. nóvember síðastliðinn að sala á fyrirtækinu til Kviku og fjárfesta hafi komið til vegna þess að Kortaþjónustan var í alvarlegum lausafjárvanda eftir gjaldþrot Monarch. „Það voru ýmsir búnir að sýna félaginu áhuga en þetta var ágætis tækifæri til að styrkja félagið. Til að taka allan vafa af um að það yrðu nokkur lausafjárvandræði. En það var ekki að stefna í það og það var ekkert sem var fyrirséð. Það er ekki orðinn neinn lausafjárvandi að neinu leyti,“ sagði Jóhannes. Hann hefur núna látið af störfum sem framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar og við starfi hans tekur Björgvin Skúli Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirkjunar, en þetta var tilkynnt á starfsmannafundi hjá fyrirtækinu síðastliðinn föstudag, samkvæmt heimildum Markaðarins.Urðu af 10 milljarða sölu Fjárfestingafélagið Óskabein, sem á sem fyrr segir tíu prósenta hlut í Kortaþjónustunni, er meðal annars í eigu Sigurðar Gísla Björnssonar, eiganda Sæmarks sjávarafurða, Gests Breiðfjörðs Gestssonar, eiganda Sparnaðar, og Andra Gunnarssonar, lögmanns og fjárfestis. Hjónin Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir og Guðmundur Örn Þórðarson, sem eru stórir hluthafar í Kviku og VÍS, eiga um 6,7 prósenta hlut í Kortaþjónustunni í gegnum félagið K2B fjárfestingar og eignarhaldsfélagið JÖKÁ, sem er í eigu Zimsen-systkinanna, fer með liðlega 6 prósenta hlut. Þá á breska félagið NO. 9 Investments Limited, sem er í eigu Dons McCarthy, fyrrverandi stjórnarmanns House of Fraser og áður stórs hluthafa í VÍS og Kviku, rúmlega fimm prósenta hlut í fyrirtækinu. Sigurður Valtýsson, fyrrverandi forstjóri Exista og samverkamaður Bakkavararbræðra, á fimm prósent í gegnum félagið Salt ehf. og fjárfestingafélagið Varða Capital, sem er í meirihlutaeigu Jónasar Hagans Guðmundssonar og Gríms Garðarssonar, á sömuleiðis fimm prósenta hlut. Félagið 520 ehf., sem er í eigu Garðars Vilhjálmssonar, eiganda bílaleigunnar Geysis, á rúmlega fjögurra prósenta hlut í Kortaþjónustunni. Áfallið sem Kortaþjónustan varð fyrir við gjaldþrot Monarch, eins og greint hefur verið frá í Markaðnum, kom á sama tíma og þáverandi eigendur þess voru langt komnir í viðræðum um sölu á fyrirtækinu til ástralsks fjárfestingasjóðs fyrir um 80 milljónir evra, jafnvirði um tíu milljarða króna. Búið var að ljúka áreiðanleikakönnun vegna fyrirhugaðrar sölu á félaginu. Ekkert varð hins vegar af kaupum sjóðsins þegar ljóst varð að Kortaþjónustan yrði fyrir miklu fjárhagstjóni þegar breska flugfélagið óskaði eftir greiðslustöðvun. Tekjur Kortaþjónustunnar námu 2,3 milljörðum á árinu 2016 og höfðu þá meira en tvöfaldast frá fyrra ári. Samkvæmt heimildum Markaðarins gerðu áætlanir stjórnenda ráð fyrir því að hagnaður fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) yrði um 1.100 milljónir á árinu 2017. Ljóst er að það gekk ekki eftir vegna greiðslustöðvunar Monarch og áhrifa hennar á fjárhag og rekstur Kortaþjónustunnar.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.
Mest lesið Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Viðskipti innlent Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Viðskipti innlent Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Viðskipti innlent Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Neytendur Hörður og Svala endurvekja Macland Viðskipti innlent Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Viðskipti innlent Eftirlitið veður í Veðurstofuna Viðskipti innlent Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Sjá meira