Lögregluþjónar létu lífið í sprengjuárás í Kólumbíu Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar 27. janúar 2018 16:14 Átök eru tíð í Kólumbíu. Myndin tengist fréttinni ekki beint. vísir/afp
Að minnsta kosti þrír lögregluþjónar létu lífið í sprengjuárás í borginni Barranquilla í Kólumbíu í dag. Reuters greinir frá. Fjórtán eru særðir eftir árásina en hún átti sér stað fyrir utan lögreglustöðina í bænum. Talið er að árásin hafi beinst sérstaklega að lögregluþjónum sem staddir voru á svæðinu. Glæpagengi sem aðhafast á svæðinu eru bendluð við árásina en nú þegar hefur einn verið handtekinn grunaður um aðild að voðaverkinu. Juan Manuel Santos, forseti Kólumbíu, sendi samúðarkveðjur til fórnarlamba árásarinnar og aðstandenda þeirra og sagði í yfirlýsingu á Twitter að yfirvöld myndu ekki anda rólega fyrr en þau hefðu hendur í hári þeirra sem ábyrgjast ódæðisverkið. Mikið er um glæpagengi í Kólumbíu og tengist starfsemi þeirra gjarnan útflutningi á kókaíni. Þá hafa átök verið tíð í landinu undanfarna áratugi, ekki síst í tengslum við skæruliðasamtökin FARC.
Kólumbía Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Barn í hoppukastala sem tókst á loft Innlent Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Innlent Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Innlent Fleiri fréttir Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Sjá meira