Valt við losun á hlassi Stefán Ó. Jónsson skrifar 5. júlí 2018 06:23 Lögreglan hafði hendur í hári fjölda ökumanna í nótt. Vísir/vilhelm
Umferðarbrot og óhöpp voru fyrirferðamikil hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Til að mynda hafnaði bifreið drukkins ökumanns, sem ekið hafði á móti rauðu ljósi, á ljósastaur við gatnamót Breiðholtsbrautar og Vatnsendahvarfs. Ökumaðurinn er sagður hafa verið bílbeltislaus en ekki er þó vitað um meiðsl hans. Talið er að loftpúðar bílsins, sem sprungu út við áreksturinn, hafi bjargað því að ekki fór verr. Bifreiðin var dregin af vettvangi og var Orkuveitan kölluð til, svo að gera mætti við fyrrnefndan ljósastaur. Nokkrum klukkustundum áður hafði verið tilkynnt um slys við Bolöldu. Þar hafði vörubifreið oltið á hliðina við losun á hlassi. Ökumaður bílsins slasaðist og var hann fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala. Ekki er þó vitað á þessari stundu hversu alvarleg meiðslin voru. Ekki fylgir heldur sögunni hvers konar hlass verið var að losa þegar slysið átti sér stað. Þá voru fjölmargir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um ölvunar- eða fíkniefnaakstur, ásamt því að aka án þess að hafa öðlast tilskilin réttindi.
Lögreglumál Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira