Aldraðir bíða og bíða í Árborg eftir plássi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 25. ágúst 2018 10:22 Aldraðir þurfa að bíða svo mánuðu skiptir eftir plássi í dagdvöl í sveitarfélaginu Árborg.
Aldraðir í Sveitarfélaginu Árborg mega búa við það að þurfa að bíða svo mánuðum skiptir eftir plássi í almennri dagdvöl eða í dagvöl fyrir heilabilaða.Sveitarfélagið rekur tvær dagdvalir, önnur er almenn dagdvöl sem heitir Árblik og er staðsett í Þjónustumiðstöð aldraðra að Grænumörk á Selfossi þar sem leyfi eru fyrir ellefu manns en í september 2017 voru sótt um leyfi fyrir sex í viðbót.Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir, félagsmálastjóri í Árborg.Átta eru á biðlista í dag eftir að komast í Árblik. „Við höfum ekki fengið svar við beiðni okkar frá ríkinu en ég hef ítrekað beiðnina. Verið er að byggja nýja dagdvöl sem verður næstum því helmingi stærri að flatarmáli og getum við því vel bætt við okkur“, segir Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir, félagsmálastjóri í Árborg. Í dagdvölinni Vinaminni á Selfossi erum leyfi fyrir tíu manns, en það er sérhæfð dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóma. Í febrúar var sótt um fjölgun leyfa fyrir þrjá til fimm í viðbót en í dag eru þrír á biðlista eftir því að komast inn á Vinaminni. „Dagdvalarúrræði eru mikilvæg og þarft úrræði fyrir þá sem það nýta sem og aðstandendur þeirra. Í dagdvölunum fer fram félagsleg virkni og eftirlit er með heilsu notenda. Ráðgjöf og leiðbeiningar eru veittar til notenda og aðstandenda. Ég harma það að ríkið horfi fram á of litla fjölgun rýma miðað við núverandi stöðu og hvað þá í ljósi mikillar fjölgunar eldri borgara á næstu árum. Dagdvalarrýmin eru samvinnuverkefni ríkis og sveitarfélaga þar sem að ríkið leggur til daggjöld og húsnæðisgjald en sveitarfélögin leggja bæði til húsnæði og fé til rekstursins“, bætir Guðlaug Jóna við.
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Velja Viljandi villt Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Fleiri fréttir Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Sjá meira