Djúsara svelgdist á við gagnrýni Egils Stefán Árni Pálsson skrifar 14. september 2018 15:30 Jón Arnar Guðbrandsson vill ekki stressa sig of mikið á orðum Egils Einarssonar. vísir/gva „
Þetta er mjög gott fyrir mann og gefur fólki mikla orku, svo það er ekki hægt að alhæfa svona. Ég skil alveg húmorinn hjá þessum strákum og er nú ekki að missa mig yfir þessu,“ segir Jón Arnar Guðbrandsson, eigandi Pure Deli, sem selur töluvert af djúsum og segir Jón að þeir séu heldur betur hollir fyrir mann. Egill Einarsson gagnrýndi djúsakúra heilmikið í Brennslunni í morgun og talaði um að þeir væri í raun aðeins gott Nígeríusvindl. „Þetta eru gríðarlega næringamiklir djúsar sem við höfum upp á að bjóða og hafa þeir hjálpað fjölmörgum að létta sig og til að mynda minnkar sykurþörfin hjá þeim sem drekka þá reglulega,“ segir Jón og bætir við að hann hafi sjálfir lést töluvert með því að drekka svona djúsa.Svona líta djúsarnir hjá Jóni út.Hann segir að djúsarnir sem hans fyrirtæki bjóði upp á séu mjög næringarmiklir og fjarri frá því að vera eitthvað Nígeríusvindl. „Það gefur auga leið að ef þú ert að drekka djús sem er með avocado, engifer, spínati, sítrónu og mangó þá eru þeir hollir fyrir þig. Svona djúsar geta vel hjálpað manni að hreinsa til í kerfinu, enda erum við ekki að tala um djúsa sem eru með bönunum, jarðaberum og öðru sykruðu. Þeir innihalda ávaxtasykur sem er bara gott í hófi og við reynum að lágmarka slíkt.“En getur maður lifað á því að drekka aðeins djúsa? „Ég held að maður geti það í raun og veru. Það er hægt að útbúa drykki sem eru með allt sem þú þarft og því sé ég ekki að það sé óraunhæft. Það kjósa aftur á móti ekki margir að gera það, sem ég skil vel.“
Brennslan Mest lesið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti Tónlist Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Lífið „Ég vil vera bestur í öllu“ Lífið Fyrsta platan í tuttugu ár Lífið Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið Opnar sig um þunglyndi og depurð Lífið Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Bíó og sjónvarp Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Fleiri fréttir „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Sjá meira