Létust vera kommúnistar til að sverta andstæðinginn Kjartan Kjartansson skrifar 12. október 2018 13:34 Trump forseta verður tíðrætt um að demókratar séu orðnir vinstriöfgaflokkur. Svo virðist sem að mennirnir tveir hafi viljað bendla Tom O'Halleran við öfgahópa til vinstri. Vísir/EPA
Tveir félagar í Repúblikanaflokknum í Arizona í Bandaríkjunum eru sagðir hafa reynt að gefa framboði þingmanns demókrata fé í nafni samtaka kommúnista. Uppátækið virðist hafa verið tilraun til þess að bendla þingmanninn við vinstriöfgahópa. Starfsmenn framboðs Toms O‘Halleran, fulltrúadeildarþingmanns demókrata, fylltust fljótt grunsemdum þegar tveir menn mættu á skrifstofu þess og vildu styrkja framboðið um tæpa fjörutíu dollar. Þegar þeir voru beðnir um að fylla út eyðublað sögðust þeir vera félagar í Kommúnistaflokki Háskóla Norður-Arizona. Það væri ekki fullgildur flokkur en hópurinn héldi úti fundum. Kröfðust þess þeir einnig að fá kvittun fyrir framlaginu. Þegar þeim var sagt að þeir fengju aðeins kvittun í tölvupósti þurrkaði annar þeirra út tölvupóstfang sem hann hafði sett á blað og skrifaði annað í þess stað, að sögn The Guardian. Fjármálastjóri framboðsins heimsótti í kjölfarið skrifstofu Repúblikanaflokksins til þess að skila fénu. Þar tók á móti honum annar meintu kommúnistanna. Fjármálastjórinn heldur því fram að hinn maðurinn sé skipuleggjandi fyrir Repúblikanaflokkinn í Arizona og að hann hafi gefið upp rangt nafn. Ólöglegt er að gefa fé til bandarískra stjórnmálaframboða undir fölsku flaggi. Hvorki Repúblikanaflokkurinn í Arizona né Wendy Rogers, frambjóðandi hans til þingkosninga sem fara fram í byrjun nóvember, vildu tjá sig um uppákomuna.
Bandaríkin Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira