Móðurfélag Vodafone leggur drög að samruna í Færeyjum Kjartan Kjartansson skrifar 1. nóvember 2018 18:04 Sýn hf. er móðurfélag Vodafone á Íslandi. Félagið undirbýr nú samruna dótturfélags síns í Færeyjum við færeyskt félag. Vísir/Hanna
Sýn, móðurfélag fjarskiptafélagsins Vodafone á Íslandi, hefur gert samkomulag um samruna dótturfélags síns í Færeyjum og færeysks félags sem saman eiga að verða leiðandi í upplýsingatækni og fjarskiptum á eyjunum. Hagnaðurinn af viðskiptunum á að nema um 850 milljónum króna. Í tilkynningu frá Sýn hf. kemur fram að félagið hafi selt meirihluta hlutafjár í Hey, dótturfélagi sínu í Færeyjum, til færeyska félagsins Tjalds. Í samkomulagi Sýnar og Tjalds er kveðið á um helstu skilmála í viðskiptum sem fela í sér samruna Heys og Nema, dótturfélags Tjaldurs. Samruninn er sagður fela í sér kostnaðarhagræði og koma til með að leysa úr læðingi frekari verðmætasköpun með fjölbreyttar vöruframboði og sölumöguleikum, einkum á fyrirtækjamarkaði. Skilmálarnir fela í sér að Sýn eignast 49,9% hlut í sameinuðu félagi en Tjaldur 50,1% hlut. Sýn fær greiðslu sem nemur 22 milljónum danskra króna auk hlutanna í viðskiptunum. Í kjölfar samrunas verður hlutur Sýnar í sameinaða félaginu líklega færður með hlutdeildaraðferð og verður því ekki hluti af reiknigsskilum samstæðu fyrirtækisins. Viðskiptin eru sögð háð margvíslegum fyrirvörum, þar á meðal frágangi á endanlegum kaupsamningi og hlutahafasamningi auk samþykki færeyskra samkeppnisyfirvalda.Vísir er í eigu Sýnar hf.
Færeyjar Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira