Í tilefni af leiðara ritstjóra Fréttablaðsins Halldóra Þorsteinsdóttir skrifar 15. nóvember 2018 14:58 Í leiðara Fréttablaðsins í gær fór ritstjóri blaðsins ófögrum orðum um fjölmiðlanefnd og ákvörðun hennar þar sem annar fjölmiðill var sektaður vegna áfengisauglýsinga. Virðist leiðarinn skrifaður í tilefni af dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem umrædd ákvörðun fjölmiðlanefndar var staðfest. Í leiðaranum lýsir ritstjórinn meðal annars þeirri skoðun sinni að fjölmiðlanefnd sé föst í fornöld, fáar ríkisstofnanir séu jafn óþarfar og að menntamálaráðherra þurfi að búa svo um hnútana að fjölmiðlar „fái að starfa í friði fyrir óþarfri nefnd um lög sem standist ekki tímans tönn“. Er hlutverki nefndarinnar svo lýst sem því helstu að leggja stein í götu fjölmiðla með sektum, boðum og bönnum. Af þessu tilefni er rétt að benda á nokkur atriði sem tengjast fjölmiðlum og því lagalega umhverfi sem þeir starfa við í dag. Hvað snertir fullyrðingar um hina fornu og óþörfu fjölmiðlanefnd verður látið duga að nefna að bæði nefndinni og núgildandi fjölmiðlalögum var komið á fót árið 2011 eða fyrir sjö árum. Stofnun nefndarinnar og lögfesting laganna var liður í því að fylgja eftir skuldbindingum íslenska ríkisins á grundvelli EES-samningsins. Með örfáum undantekningum, m.a. þeirri sem felst í umræddu áfengisauglýsingabanni, eiga langflestar þeirra reglna fjölmiðlalaga sem eftirlit fjölmiðlanefndar hefur beinst að samsvörun í tilskipunum Evrópusambandsins sem aftur taka mið af samevrópskum viðmiðum um eðlilega blaðamannshætti, fjölmiðlafrelsi og starfshætti fjölmiðla. Lögin kveða ekki einasta á um reglur sem fela í sér viðurkennd viðmið á sviði fjölmiðlaréttar heldur tilteknar lágmarksreglur sem íslenska ríkinu er skylt að þjóðarétti að virða. Þær lágmarksreglur eiga sér síðan langflestar fyrirmyndir meðal reglna nágrannaþjóða Íslands. Þó svo að skiljanlegt sé að ritstjórar fjölmiðla hafi neikvæða afstöðu gagnvart fjölmiðlaeftirliti, enda mannlegt að þola illa þann sem setur manni takmörk, er regluverk fjölmiðla mun flóknara en svo að unnt sé að leggja af lögin eða fjölmiðlanefnd á einu bretti. Hvað varðar síðan fullyrðingar ritstjórans í tengslum við fyrrgreinda ákvörðun verður afstaða hennar ekki skilin öðruvísi en svo að fjölmiðlanefnd hefði verið rétt að halda að sér höndum með viðbrögð þar sem öllum sé ljóst að ekki sé hægt að viðhalda banni við áfengisauglýsingum. Regluverkið sé gallað og að vettugi virðandi. Það má vissulega taka undir það með ritstjóranum að óljóst sé hvort áfengisauglýsingabannið sé enn til þess fallið að stuðla að því markmiði sem að var stefnt, þ.e. að draga úr skaðlegum áhrifum aukinnar áfengisneyslu. Ritstjórinn veit hins vegar vel að ákvörðun um áfengisauglýsingabannið var tekin af löggjafanum á Alþingi en ekki fjölmiðlanefnd. Nefndin hefur einungis lögbundið eftirlit með lögunum og enga heimild til þess að hætta að framfylgja þeim á þeim grundvelli að henni þyki reglurnar óheppilegar, pólitískt rangar eða í ósamræmi við viðhorf almennings hverju sinni. Enn síður er nefndin í stakk búin að elta meinta ríkjandi strauma í samfélagsumræðunni eða haga störfum sínum þannig að þóknanleg séu þeim sem eftirlitinu sæta. Ekki frekar en lögreglumaður sem er ósammála reglum um hámarkshraða á tilteknu svæði getur ákveðið að hætta eftirliti með lögunum af því að „það er vonlaust að ná utan um þetta“ eða honum finnst lögin vera röng. Þessa skiptingu ríkisvalds í löggjafa og framkvæmdarvald, þýðingu lagareglna almennt og þá kröfu almennings að eftirlit sé haft með gildandi regluverki ætti ritstjórinn að þekkja vel. Bæði hann og hans starfsmenn hafa enda margoft tekið föstum tökum stjórnmálamenn, ráðamenn, fyrirtæki og einstaklinga sem hafa mögulega gerst brotleg við hinar ýmsu reglur og kallað eftir viðbrögðum eftirlitsaðila á viðkomandi sviði. Það er ábyrgðarhluti fjölmiðils, sem hefur mikilvægu upplýsingahlutverki að gegna gagnvart almenningi og skoðanamyndandi áhrif í samfélaginu, að sópa ekki undir teppi eða afneita regluverkinu eða þeirri umgjörð sem lögin boða þegar spjótin beinast að honum sjálfum. Fjölmiðlar verða að þola regluverk eins og önnur svið samfélagsins. Það er vissulega eðlilegt að ritstjóri láti í ljós skoðun sína á löggjöf um áfengisauglýsingabann og geri að umtalsefni erfiðar rekstrarlegar forsendur fjölmiðla. Það vekur hins vegar upp spurningar þegar ritstjóri eins stærsta fjölmiðilsins lætur í það skína að eðlilegt sé að virða að vettugi lög á hans sviði vegna þess að lögin standist ekki tímans tönn eða að nefnd sem hefur eftirlit á viðkomandi sviði sé ekki starfi sínu vaxin þar sem hún framfylgi óheppilegri löggjöf. Ef fyrirtæki á öðru sviði samfélagsins, t.d. í fjármálaþjónustu, heimtaði að reglur á sviðinu yrðu afnumdar og eftirliti hætt verður að treysta því að fjölmiðlar myndu fjalla um slíkt með gagnrýnum og málefnalegum hætti. Um leið verður að gera þá kröfu að umfjöllun um mál er varða fjölmiðlana sjálfa verði á grundvelli sömu grunngilda blaðamennsku og umfjöllun um önnur svið samfélagsins en að fjölmiðlar falli ekki í þá freistingu að fjalla um sjálfa sig með mildari höndum.Halldóra Þorsteinsdóttir lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík og varaformaður fjölmiðlanefndar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Halldóra Þorsteinsdóttir Mest lesið Gerir háskólanám þig að grunnskólakennara? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Kirkjuklukkur hringja Bjarni Karlsson Skoðun Svargrein: Ísland á víst að íhuga aðild að ESB Ágúst Ólafur Ágústsson Skoðun „Er allt í lagi?“ Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Fordómar gagnvart hinsegin fólki – Reynslusaga Geir Gunnar Markússon Skoðun Sumarfríinu aflýst Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Göngum í Haag hópinn Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Skoðun Einmanaleiki: Skortir þig tengsl við þig eða aðra? Sigrún Þóra Sveinsdóttir Skoðun Stríð skapar ekki frið Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Úr skotgröfum í netkerfin: Netárásir á innviði Vesturlanda Ýmir Vigfússon Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleiki: Skortir þig tengsl við þig eða aðra? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Svargrein: Ísland á víst að íhuga aðild að ESB Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar Skoðun Fjölbreytni í endurhæfingu skiptir máli Hólmfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Sumarfríinu aflýst Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Úr skotgröfum í netkerfin: Netárásir á innviði Vesturlanda Ýmir Vigfússon skrifar Skoðun Fordómar gagnvart hinsegin fólki – Reynslusaga Geir Gunnar Markússon skrifar Skoðun „Er allt í lagi?“ Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Göngum í Haag hópinn Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Skoðun Kirkjuklukkur hringja Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Gerir háskólanám þig að grunnskólakennara? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð skapar ekki frið Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Íslenska stóðhryssan og Evrópa Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvammsvirkjun – Skyldur ráðherra og réttur samfélagsins Eggert Valur Guðmundsson skrifar Skoðun Norska leiðin er fasismi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Um mýkt, menntun og von Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Höfum alla burði til þess Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Tímabær rannsókn dómsmálaráðuneytisins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar Skoðun Umsókn krefst ákvörðunar – ekki ákalls Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hjálp, barnið mitt spilar Roblox! Kristín Magnúsdóttir skrifar Skoðun Líkindi með guðstrú og djöflatrú Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Ævinlega þakkláti flóttamaðurinn Zeljka Kristín Klobucar skrifar Skoðun Vér vesalingar Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Leikrit Landsvirkjunar Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að loka landinu – við þurfum að opna augun Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Svona eða hinsegin, hvert okkar verður næst? Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Reynisfjara og mannréttindasáttmáli Evrópu Róbert R. Spanó skrifar Skoðun Að hlúa að foreldrum: Forvörn sem skiptir máli Áróra Huld Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ákall til íslenskra stjórnmálamanna Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Þurfum við virkilega „leyniþjónustu”? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Byrjað á öfugum enda! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að loka landinu – við þurfum að opna augun Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar