Krefst þess að deilan um Gíbraltar verði leyst fyrir Brexit-fund Atli Ísleifsson skrifar 24. nóvember 2018 10:28 Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, hefur hótað því að sniðganga leiðtogafundinn á morgun. Getty/Pablo Blazquez Dominguez
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, er nú á leiðinni til Brussel þar sem hún mun funda með háttsettum embættismönnum sambandsins til að leggja lokahönd á Brexit-samninginn. Leiðtogar aðildarríkja ESB munu svo koma saman á morgun til að kvitta undir samninginn.BBC segir frá því að forsætisráðherra Spánar, Pedro Sanchez, hafi hótað því að sniðganga fundinn, takist ekki að ná samkomulagi um stöðu Gíbraltar eftir útgöngu Bretlands. Nái leiðtogar ESB-ríkjanna saman um samninginn þarf May enn að sannfæra breskan þingheim um að samþykkja samninginn. Gæti það reynst erfitt þar sem stór hluti þingmanna hafi lýst efasemdum um ágæti hans.Formaður DUP andvígur Búist er við að Arlene Foster, leiðtogi Lýðræðislega sambandsflokksins (DUP), muni ítreka andstöðu sína við samninginn á flokksfundi síðar í dag, en flokkurinn hefur varið minnihlutastjórn Íhaldsflokksins falli. Bretland mun formlega ganga úr Evrópusambandinu þann 29. mars á næsta ári. Um 52 prósent breskra kjósenda greiddu atkvæði með útgöngu í þjóðaratkvæðagreiðslu í júní 2016 og hafa viðræður um útgöngu staðið síðan.
Bretland Brexit Evrópusambandið Spánn Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað Sjá meira