Bragi Valdimar stórslasaðist í Rússlandi og fékk spjót í gegnum lærið Stefán Árni Pálsson skrifar 14. desember 2018 10:15 Bragi Valdimar lenti í miklum hremmingum í Rússlandi fyrir 12 árum.
Tónlistarmaðurinn og textasmiðurinn Bragi Valdimar Skúlason sagði skemmtilega ferðasögu í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Ferðin endaði á sjúkrahúsi sem minnti meira á sláturhús en spítala að sögn Braga. Sagan kemur fram í heimildarmynd í Sjónvarpi Símans um ferð Baggalútsmanna til Rússlands. „Þetta var nú fyrir tólf árum síðan þegar við vorum aðeins yngri og vitlausari. Hljómsveitin Hjálmar hafði farið þangað árinu áður. Við vorum drifnir þarna yfir í mikla svaðilför til St. Pétursborgar og vorum að spila þarna á mjög furðulegum stöðum. Með kúrekahattana að syngja íslenska tónlist. Þetta var með því súrealískara sem maður hefur gert.“ Bragi segir að Baggalútsmenn hafi þýtt lagið Pabbi þarf að vinna yfir á rússnesku sérstaklega fyrir tónleikaferðalagið.Versta hugmyndin „Eitt kvöldið vorum við læstir út af hótelinu sem við vorum á og ég ákvað að prýla yfir grindverk sem er sennilega versta hugmynd sem ég hef fengið,“ segir Bragi. Spjót hafi staðið upp úr grindverkinu og því mjög hættulegt. „Eitt af þeim fór sem sagt í gegnum lærið á mér og það var mjög lítið gaman. Sem betur fer fór þetta ekki í gegnum slagæð eða vöðva. Bara í gegnum selspikið á ísbirninum frá Hnífsdal. Mér var dröslað inn á spítala sem minnti frekar á sláturhús.“Hér að neðan má hlusta á frásögn Braga.
Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira