Lífið

Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það

Stefán Árni Pálsson skrifar
Daði hafði allt til að verða góður í körfubolta. Allt nema kannski hausinn.
Daði hafði allt til að verða góður í körfubolta. Allt nema kannski hausinn.

Í síðasta þætti af Kviss kláruðust 16 liða úrslitin þegar íþróttafélagið Garpur mætti Þrótturum.

Garpur var skipað þeim hjónum Daða Frey og Árnýju Fjólu en í liði Þróttar mættu þau Hákon Jóhannesson og tónlistarkonan Bríet.

Umræða skapaðist um íþróttahæfileika Daða í byrjun þáttarins og var hann spurður hvort hann hefði nú ekki æft körfubolta, en Daði er vel yfir tveir metrar á hæð.

Daði kannaðist nú við það og var í körfuboltaliði FSU. Svo kom síðar í ljós að hann var rekinn úr liðinu fyrir að detta í það á skólaballi. Hér að neðan má sjá umræðuna um körfuboltaafrek Daða. Hægt er að sjá Kviss þættina alla í heild sinni inni á Sýn+.

Klippa: Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.