Skuldagrunnur á teikniborði eftirlitsins Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar 17. janúar 2019 07:30 Fjármálaeftirlitið hefur unnið að því að koma á fót miðlægum skuldagrunni í því skyni að efla greiningu og eftirlit. Verkefnið er skammt á veg komið, enda stórt í sniðum, og mun að öllum líkindum krefjast sérstakrar heimildar í lögum. Fréttablaðið/Vilhelm
Fjármálaeftirlitið hefur unnið að því að koma á fót miðlægum skuldagrunni í því skyni að efla greiningu og eftirlit. Verkefnið er skammt á veg komið, enda stórt í sniðum, og mun að öllum líkindum krefjast sérstakrar heimildar í lögum. Í hvítbókinni um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið var fjallað um hugmyndir að miðlægum skuldagrunni sem nýttist stofnunum við að fá auknar upplýsingar um skuldsetningu í efnahagslífinu. Fjármálaeftirlitið heldur nú þegar utan um skuldbindingaskrá þar sem upplýsingum um skuldbindingar sem nema yfir 300 milljónum króna er safnað. „Við erum sammála því sem kemur fram í hvítbókinni að það sé æskilegt að ganga enn lengra þannig að Fjármálaeftirlitið fái heimild til þess að safna skuldaupplýsingum yfir lágum fjárhæðarmörkum,“ segir Jón Þór Sturluson, aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins, í samtali við Markaðinn. „Fyrir tveimur árum hófum við vinnu sem miðar að því að útvíkka skuldbindingaskrána.“ Jón Þór segir að víðtækur skuldagrunnur verði fyrst og fremst notaður í greiningar- og eftirlitsskyni. „Þetta mun gera okkur kleift að fylgjast betur með lykilmælikvörðum eins og vanskilum, mismunandi flokkum vanskila o.s.frv. Þannig getum við greint breytingar með skjótari hætti. Við erum líka að horfa til þess að þetta sé tæki til að skoða samþjöppun á markaði, þ.e.a.s. hvernig lánveitingar til einstakra atvinnugreina og hópa séu að þróast,“ segir Jón Þór. „Einnig má nýta gögnin til að framkvæma álagspróf um leið og þau berast án frekari vinnslu af hálfu fjármálastofnana.“ Aðdragandann má rekja aftur til ársins 2017 þegar Fjármálaeftirlitið kynnti fjármálastofnunum tillögur sínar um að þær veittu eftirlitinu ýtarlegri upplýsingar um skuldbindingar. Jón Þór segist sjá gagnkvæman ávinning í þess konar fyrirkomulagi. „Í dag erum við að sinna sömu þörf með þeim hætti að bankar og aðrar fjármálastofnanir taka saman og veita okkur ákveðin gögn með mismunandi hætti. Víðtækur skuldagrunnur myndi einfalda upplýsingagjöf fjármálastofnana. Þá þurfum við ekki jafn margar sérhannaðar skýrslur, til dæmis með samandregnum upplýsingum um gæði útlána, og einnig höfum við betri yfirsýn yfir stöðuna þannig að sértækum fyrirspurnum fækkar,“ segir Jón Þór en bætir við að verkefnið sé skammt á veg komið. „Ég get ekki sagt til hvenær þessu verkefni lýkur enda er það stórt og flókið í tæknilegum skilningi,“ segir Jón Þór. Þá telur hann líklegt að lagasetningu þurfi til að unnt verði að koma slíkum skuldagrunni á fót. Þá benda höfundar hvítbókarinnar á það að miðlægur skuldagrunnur geti stuðlað að betri ákvarðanatöku fjármálafyrirtækja og lánþega, auk þess að nýtast stjórnvöldum í tengslum við almenna stjórn efnahagsmála. Upplýsingasöfnun af þessu tagi krefst hins vegar þess að hugað verði vandlega að persónuvernd þeirra sem upplýsingarnar varða. Jón Þór segir að Fjármálaeftirlitið þurfi ekki persónugreinanlegar upplýsingar nema þegar um stórar skuldbindingar er að ræða. „Fjármálaeftirlitið þarf ekki að vita deili á öllum skuldurum landsins, það eru fyrst og fremst stærri skuldbindingar sem þarf að persónugreina og það þarf að vera lögbundinn tilgangur með slíkri söfnun. Við sjáum fyrir okkur að undir ákveðnum fjárhæðarmörkum verði upplýsingarnar órekjanlegar.“
Birtist í Fréttablaðinu Persónuvernd Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira