Gistinóttum fækkar milli ára Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. febrúar 2019 09:04 Veðrið í janúar lék marga ferðamenn grátt. Vísir/vilhelm
Gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum í janúar síðastliðnum voru um 543.000, en þær voru um 566.000 í sama mánuði fyrra árs. Heildarfjöldi gistinátta í janúar dróst því saman um 4,1% milli ára, þar af var 4,5% samdráttur á hótelum og gistiheimilum, 0,9% fækkun á öðrum tegundum gististaða og 6% samdráttur á stöðum sem miðla gistingu gegnum Airbnb og svipaðar síður. Þetta er meðal þess sem kemur fram í úttekt Hagstofunnar um gistinætur í janúar. Þar segir að gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru 323.000 talsins í síðasta mánuði, gistinætur í íbúðagistingu, farfuglaheimilum, tjaldsvæðum voru 116.000 og um 104.000 gistnætur voru bókaðar í gegnum vefsíður á borð við Airbnb. Einnig voru gistinætur erlendra ferðamanna um 6.000 í bílum utan tjaldsvæða og um 16.000 hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu. Bretar voru með flestar gistinætur, 81.300, síðan Bandaríkjamenn, 57.200, og Kínverjar, 20.200, en gistinætur Íslendinga voru 23.500. Þá var herbergjanýting í janúar 2019 var 49,9%, sem er lækkun um tæp 6 prósentustig frá janúar 2018 þegar hún var 55,8%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 2,1% mælt í fjölda herbergja. Nýtingin í janúar var best á höfuðborgarsvæðinu, eða 66,3%.hagstofa íslands
Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira