Stoltur og glaður í hjartanu 1. mars 2019 17:30 Sundkappinn Hjalti Geir Guðmundsson klæðist hér stoltur treyju Special Olympics með foreldrum sínum, Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur og Guðmundi Magnússyni. Mynd/Sigtryggur Ari
Hjalti Geir er ákaflega upp með sér að hafa verið valinn til þess að fara á heimsleikana. Hann er svo innilega stoltur og glaður í hjartanu og finnur að þetta er eitthvað stærra og meira,“ segir Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, móðir sundkappans. „Það er sagt um heimsleikana að þátttaka í þeim sé sigurför fyrir sjálfsmyndina og það eru orð að sönnu. Nú er komið ár síðan Hjalti Geir var valinn og ég hef séð hversu mikið það hefur gert fyrir sjálfsmynd hans og sjálfstraust að fá viðurkenningu fyrir að vera duglegur, leggja sig fram, vera stundvís og gera sitt besta. Þetta verður þroskaför því heimsleikarnir eru haldnir svo langt í burtu og Hjalti Geir fer utan með þjálfara og hópnum en ekki okkur, eins og hann er vanur. Það þykir honum spennandi og hann verður svolítið stór við þessa lífsreynslu. Þetta verður þroskandi fyrir hann á svo marga vegu; að vera hluti af hóp, fara eftir fyrirmælum, og að sýna stillingu og þolinmæði sem allt er svo mikilvægt og dýrmætt.“Fann sig í fyrsta sundtíma Það var í skólasundi í Hlíðaskóla sem Hjalti Geir vakti fyrst athygli fyrir sundhæfileika sína. „Þar kom sundkennarinn auga á hversu Hjalti Geir var duglegur að synda og benti Ólafi Ólafssyni, þáverandi formanni íþróttafélagsins Aspar, á Hjalta Geir sem varð til þess að Ólafur hafði samband við okkur og spyr hvort við viljum ekki koma með hann á sundæfingu,“ rifjar Jóhanna Vigdís upp um upphaf sundferils Hjalta Geirs sem þá var sjö ára. „Hjalti Geir fann sig í sundinu á fyrstu sundæfingunni og hefur allar götur síðan æft sund, fyrst í Æfingastöðinni á Háaleitisbraut en þegar hann stækkaði fór hann yfir í Laugardalslaug og æfir nú þar fimm til sex sinnum í viku. Sundið er stór og mikilvægur þáttur í lífi hans og fastur hluti af tilveru hans að fara á æfingu, leggja sig fram og reyna betur í dag en í gær. Honum er mikilvægt að taka þátt í mótum og hitta sundfélagana, en hann er í keppnishóp Asparinnar, afskaplega ánægður og sáttur,“ segir Jóhanna Vigdís. Hjalti Geir hefur líka gríðarlegan áhuga á boltaíþróttum. „Fyrsta táknið sem hann lærði í táknmáli var táknið fyrir bolta. Hann er mikill Valsari en þar er hann á hliðarlínunni á meðan hann keppir á jafnréttisgrundvelli í sundinu. Sterkustu sundgreinar Hjalta Geirs eru baksund og skriðsund en í félagakeppni þykir honum boðsund skemmtilegast.“Hugur Hjalta Geirs hefur dvalið við heimsleika Special Olympics síðan hann var valinn til þess að fara á þá í fyrra. Sjálfstraust hans og sjálfsmynd hafa blómstrað enda er sigurinn unninn með þátttökunni.MYND/SIGTRYGGUR ARIÖll fjölskyldan fer með Heimsleikar Special Olympics verða settir í Abú Dabí fimmtudaginn 14. mars. „Við foreldrar og systkini Hjalta Geirs förum líka út, eins og systir mín með sínar dætur. Elsta dóttir mín á kærasta og þau fara með dóttur sína. Eins og allir þekkja sem eiga fötluð börn verða þau svolítið þungamiðjan í heimilislífinu og við erum öll svo stolt og glöð vegna Hjalta Geirs og tímum alls ekki að missa af þessum viðburði. Við verðum öll samankomin á setningarhátíðinni í Abú Dabí og erum óskaplega spennt,“ segir Jóhanna Vigdís sem hefur oftsinnis fylgt Hjalta Geir á alþjóðleg íþróttamót fatlaðra í Málmey í Svíþjóð. „Það kennir manni mikið að fara á íþróttamót fatlaðs íþróttafólks og breytir hugarfari manns að verða vitni að því að sjá íþróttafólk sem á vantar útlimi eða eru með þaðan af meiri fötlun. Þá skammast maður sín fyrir að kvarta undan bólu á nefinu og gerir það aldrei meir. Fatlað íþróttafólk þarf að leggja svo miklu meira á sig og róðurinn er svo miklu þyngri, en kosturinn við að vera hluti af samfélagi fatlaðra íþróttamanna er að geta keppt á jafnréttisgrundvelli, tekið þátt í íþróttum, verið virkur íþróttamaður, náð árangri, bætt sig og sett sér markmið. Þess vegna er það kallað sigurför fyrir sjálfsmyndina, því það eitt að taka þátt er sigurför. Í því felst sigurinn. Að fá að fara og vera valinn, og maður vinnur því fyrirfram með því að vera þátttakandi í sigurförinni.“Fullur metnaðar og kapps Hjalti Geir er með þroskahömlun og fæddist með klofinn góm og skarð í vör. „Gómurinn hefur lítinn efnivið og því talar Hjalti Geir óskýrt. Hann hefur verið í talþjálfun og tannréttingum síðan hann man eftir sér og farið í margar stórar aðgerðir. Hann stendur nú á tvítugu, lauk stúdentsprófi frá sérnámsbraut Fjölbrautaskólans í Ármúla í fyrra og starfar nú hjá Styrktarfélaginu Ási sem er verndaður vinnustaður og er mjög ánægður í vinnunni,“ upplýsir Jóhanna Vigdís en Hjalti Geir er næstelstur fjögurra barna þeirra Guðmundar Magnússonar. Hún segir hug Hjalta Geirs hafa dvalið við heimsleikana í allan vetur, en alls fara fjórir sundmenn utan í 38 keppenda hópi Íslendinga. „Hjalti Geir er mikil félagsvera og mikill vinur. Hann þekkti einhverja í hópnum fyrir en hefur ekki æft með þessu sundfólki áður, utan eina æfingu sem þau tóku saman fyrr í febrúar. Þá fóru þau saman út að borða á eftir og það þótti honum mjög skemmtilegt.“ Á heimsleika Special Olympics fer þáttagerðarfólk Með okkar augum til að fylgja íslensku keppendunum eftir. „Það finnst mér frábært og ég hlakka til að hitta þau úti. Special Olympics er stærsti íþróttaviðburður heims þetta árið og mikið fjallað um það í erlendum fjölmiðlum, eins og þegar farið var með Special Olympics-eldinn en þá var niðurtalning á CNN,“ upplýsir Jóhanna Vigdís. Heimsleikarnir verða settir 14. mars og standa yfir í viku. „Hjalti Geir hefur mikinn metnað og kom okkur á óvart með að vera mikill keppnismaður. Hann vill auðvitað helst bara vinna, og hefur alltaf viljað það, og hann er með þetta allt upp á tíu. Þess vegna var hann valinn.“
Birtist í Fréttablaðinu Sund Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Fleiri fréttir „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Bjóða upp á Barna Fan-Zone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Jake Paul lofar að hætta í hnefaleikum ef hann tapar fyrir Doumbe FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Dagskráin í dag: Meistaradeildarveisla í allt kvöld Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga Sigurganga Hauka heldur áfram Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Sjá meira