KR spilar sögulegan heimaleik í DHL-höllinni á föstudagskvöldið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. apríl 2019 16:00 Jón Arnór Stefánsson. Vísir/Daníel
KR-ingar fögnuðu eflaust vel í gærkvöldi þegar Þór og ÍR komust áfram í undanúrslit Domino´s deildar karla. Ástæðan er sú að allt í einu eru Vesturbæingar komnir með heimavallarrrétt í undanúrslitaeinvígi sínu. Í fyrsta sinn í sögu úrslitakeppinnar í körfubolta karla voru þrjú af fjórum liðum undanúrslitanna ekki meðal fjögurra efstu liðanna í deildarkeppninni. Þór og ÍR unnu oddaleiki í gær og tryggðu sér sæti í undanúrslitunum á kostnað Tindastóls og Njarðvíkur. Þór endaði í sjötta sæti í deildinni en ÍR í því sjöunda. KR hafði áður slegið Keflvíkinga út en Keflavíkurliðið varð í fjórða sæti í deildarkeppninni. Stjarnan er eina liðið sem komst áfram í undanúrslitin af þeim liðum sem voru með heimavallarrrétt í átta liða úrslitunum. Þetta þýðir allt saman að KR verður með heimavallarrrétt í undanúrslitunum þrátt fyrir að hafa endað bara í fimmta sæti í deildarkeppninni. KR-liðið skrifar því nýjan kafla í sögu úrslitakeppninnar með því að byrja undanúrslitin á heimavelli. Ekkert lið í sögunni hefur byrjað undanúrslitin á heimavelli án þess að hafa endað í einu af fjórum efstu sætunum í deildarkeppninni.Lið í fimmta sæti og neðar sem komast í undanúrslit úrslitakeppninnar(Frá því að núverandi deildarfyrirkomulag var tekið upp 1996/97) 2019 - 3 lið (5 KR, 6 Þór Þorl., 7 ÍR) 2018 - Ekkert 2017 - 1 lið (6 Keflavík) 2016 - 2 lið (6 Tindastóll, 7 Njarðvík) 2015 - Ekkert 2014 - 1 lið (7 Stjarnan) 2013 - 1 lið (7 KR) 2012 - Ekkert 2011 - 1 lið (5 Stjarnan) 2010 - 2 lið (5 Njarðvík, 6 Snæfell) 2009 - Ekkert 2008 - 2 lið (5 Snæfell, 7 ÍR) 2007 - 1 lið (5 Grindavík) 2006 - Ekkert 2005 - 1 lið (6 ÍR) 2004 - Ekkert 2003 - 2 lið (5 Njarðvík, 6 Tindastóll) 2002 - 1 lið (5 Grindavík) 2001 - Ekkert 2000 - 1 lið (5 KR) 1999 - Ekkert 1998 - 2 lið (6 Keflavík, 8 ÍA) 1997 - 2 leið (5 Njarðvík, 6 KR)
Dominos-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Sjá meira