Þetta gerist með Meistaradeildarsætin ef ensk lið vinna báðar Evrópukeppnirnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. maí 2019 12:30 Virgil van Dijk eftir úrslitaleikinn í Kiev í fyrra. Getty/Matthew Ashton
England fær aldrei sex lið inn í Meistaradeildina á næstu leiktíð þótt að ensku liðin vinni bæði Meistaradeildina og Evrópudeildina í vor. Liverpool er komið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar og gæti mætt þar öðru ensku liði, Tottenham. Tvö ensk félög gætu einnig spilað til úrslita í Evrópudeildinni því Arsenal og Chelsea eru í fínni stöðu eftir fyrri leiki sína í undanúrslitunum. Sigurliðið í Meistaradeildinni og sigurliðið í Evrópudeildinni fá bæði sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Hvað gerðist þá ef ensk lið vinna báða þessa titla? Staðreyndin er sú að ef lið er ekki meðal þeirra fjögurra efstu í ensku úrvalsdeildinni þá er eina leiðin fyrir það inn í Meistaradeildina að vinna aðra hvora Evrópukeppnina.UCL Qualification: If Arsenal win the EL, then they will qualify for the UCL and Top-4 will also play UCL (England will have 5 teams in UCL) If Chelsea win the EL, then CFC and the other Top 3 teams will play UCL (England will not get an extra spot and it'll be given to France) pic.twitter.com/htJD0vg9nk — Nouman (@nomifooty) May 6, 2019Svo gæti líka farið að liðið í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar myndi ekki komst í Meistaradeildina en jafntefli Manchester United um síðustu helgi þýðir að sú staða getur ekki komið upp í ár. Manchester United á ekki lengur möguleika á því að enda meðal fjögurra efstu í ensku úrvalsdeildinni. Það eiga aðeins Arsenal og Tottenham fyrir utan lið Manchester City, Liverpool og Chelsea sem eru örugg. Arsenal á tölfræðilega möguleika á að ná fjórða sætinu af Tottenham en þá þarf mikið að gerast í lokaumferðinni. Aðeins þrjú efstu sætin í ensku úrvalsdeildinni hefðu skilað Meistaradeildaræsti ef að lið utan topp fjögur myndi vinna bæði Evrópudeildina og Meistaradeildina. Hámarksfjöldi liða frá einu landi í hverri Meistaradeild eru fimm lið. Þá skiptir ekki máli þótt að lið frá landinu vinni báðar Evrópukeppnirnar því þá fengi landið aðeins þrjú sæti til viðbótar. Það verður því aldrei þannig að Manchester United fái Meistaradeildarsæti þótt að Livepoool vinni Meistaradeildina og Arsenal eða Chelsea Evrópudeildina. Liðið í fimmta sæti fer alltaf í Evrópudeildina í gegnum ensku úrvalsdeildina. Það má lesa meira um þetta hér.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Fleiri fréttir Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Sjá meira