Bein útsending: Esjuhlaupið á Reykjavik Crossfit Championship Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. maí 2019 11:45 Keppendur á leiðinni upp Esjuna klukkan tólf í dag. Vísir/Vilhelm
Það verður mikið fjör á Esjunni í hádeginu í dag þegar fyrsta grein á Crossfit móti Reykjavíkur fer þar fram en hægt verður að fylgjast með keppninni á Vísi.ReykjavikCrossfitChampionship, fyrsta alþjóðlega stórmótið í Crossfit á Íslandi, hefst í dag og fyrsta greinin fer fram í hlíðum Esjunnar. Íslendingar þekkja margir vel gönguleiðina upp að Steini. Reykjavík CrossfitChampionship er liður í nýju „Sanctionals“ keppnisfyrirkomulagi CrossFit íþróttarinnar og sigurvegarar keppninnar tryggja sér þátttökurétt á heimsleikunum í Madison í haust. Um 120 keppendur sem koma frá 17 löndum taka þátt í keppninni sem er bæði einstaklings- og liðakeppni. 29 karlar og 24 konur taka þátt í einstaklingskeppninni en þekktustu keppendurnir eru Björgvin Karl Guðmundsson, RomanKhrennikov, LukasEsslinger, TimPaulson, Þuríður Erla Helgadóttir, Haley Adams og Samantha Briggs svo einhver séu nefnd. Fróðlegt verður að sjá hvernig erlendum keppendum vegnar í baráttu við Esjuna.Vísir/VilhelmMótið, stendur í þrjá daga en fyrir utan Esjuhlaupið þá fara allar aðrar þrautir fram í Laugardalshöllinni. Allar nítján CrossFitstöðvar landsins hafa haft aðkomu að framkvæmd keppninnar og margir efnilegir Íslendingar eru að fá tækifæri þarna til að láta ljós sitt skína án þess að þurfa að ferðast yfir höfin blá til að taka þátt. Annie Mist Þórisdóttir er ein af skipuleggjendum RCC og er þar af leiðandi ekki á meðal keppenda á sjálfu mótinu. Katrín Tanja Davíðsdóttir og Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir hafa líka tryggt sér sæti á heimsleikunum og keppa ekki á mótinu. Esjuhlaupið hefst klukkan 12.00 og þetta er kapphlaup upp að Steini þar sem sá fyrsti í mark tryggir sér hundrað stig. Hér fyrir neðan birtist streymið um leið og það er orðið aðgengilegt, um klukkan 12. Uppfært klukkan 12:28: Snorri Baron Jónsson sem kemur að skipulagningu keppninnar segir í samtali við Vísi að vandamál sé með útsendinguna sem verið sé að vinna í að leysa. Hann mælir með að fólk fylgist með Instagram reikningi Rory McKernan sem er í Esjunni og fylgist með gangi mála.Uppfært klukkan 12:15: Enn er beðið eftir að útsendingin, sem mótshaldarar boðuðu á Facebook-síðu keppninnar, hefjist. Keppni er hafin en síðasti hópurinn er að leggja af stað upp Esjuna.Uppfært klukkan 12:45: Ekkert bendir til þess að verði af beinni útsendingu úr hlíðum Esjunnar
CrossFit Esjan Tengdar fréttir Reyndur Esjuhlaupari telur að CrossFit-keppendur sprengi sig gjörsamlega upp að Steini Venjuleg ganga upp að Steini tekur rúman klukkutíma en búist við að CrossFit-keppendur verði í um 30 mínútur þangað upp. 1. maí 2019 22:50 Segja Söru gefa hugtakinu „no pain, no gain“ nýja merkingu Sara Sigmundsdóttir fær mikið hrós frá CNN fyrir hörkuna sem hún hefur sýnt undanfarin ár við að berjast í gegnum sársaukafull meiðsli. Meiðslin hafa ekki aðeins reynt á hana líkamlega heldur líka andlega. 5. apríl 2019 09:30 Anníe Mist: Það er ykkur að þakka að ég fæ að gera þetta Íslenska CrossFit-drottningin Anníe Mist Þórisdóttir fagnar nú sínu tíunda ári í CrossFit en hún kom öðrum fremur CrossFit á kortið á Íslandi á sínum tíma með frábærum árangri sínum á heimsleikunum. 29. apríl 2019 12:30 Íslendingar fá að sjá Anníe Mist og Katrínu Tönju keppa hvor við aðra á laugardaginn Fyrsta alþjóðlega stórmótið í CrossFit hér á landi fer fram í Reykjavík um helgina og í boði eru sæti á heimsleikunum í Madison í haust. 2. maí 2019 08:30 Sleðahundurinn Katrín Tanja ætlaði að verða lögfræðingur og sendiherra Katrín Tanja Davíðsdóttir er eitt stærsta nafnið í CrossFit-heiminum. 9. apríl 2019 12:00 Esjan og „Steinninn“ bjóða CrossFit fólkið velkomið til Íslands Keppendur á alþjóðlega CrossFit mótinu sem fram fer á Íslandi um komandi helgi er ráðlagt að koma vel útbúin til Íslands. Ein af ástæðunum er fyrsta grein mótsins á föstudaginn kemur. 29. apríl 2019 09:00 Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Skömmustulegir landsliðsmenn og Man. Utd vann fótboltaleik Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Guðmundsdætur verða áfram í KR Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn Geta unnið tíunda leikinn í röð í undankeppni EM „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Bjóða upp á barna FanZone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Jake Paul lofar að hætta í hnefaleikum ef hann tapar fyrir Doumbe FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Dagskráin í dag: Meistaradeildarveisla í allt kvöld Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Sjá meira
Reyndur Esjuhlaupari telur að CrossFit-keppendur sprengi sig gjörsamlega upp að Steini Venjuleg ganga upp að Steini tekur rúman klukkutíma en búist við að CrossFit-keppendur verði í um 30 mínútur þangað upp. 1. maí 2019 22:50
Segja Söru gefa hugtakinu „no pain, no gain“ nýja merkingu Sara Sigmundsdóttir fær mikið hrós frá CNN fyrir hörkuna sem hún hefur sýnt undanfarin ár við að berjast í gegnum sársaukafull meiðsli. Meiðslin hafa ekki aðeins reynt á hana líkamlega heldur líka andlega. 5. apríl 2019 09:30
Anníe Mist: Það er ykkur að þakka að ég fæ að gera þetta Íslenska CrossFit-drottningin Anníe Mist Þórisdóttir fagnar nú sínu tíunda ári í CrossFit en hún kom öðrum fremur CrossFit á kortið á Íslandi á sínum tíma með frábærum árangri sínum á heimsleikunum. 29. apríl 2019 12:30
Íslendingar fá að sjá Anníe Mist og Katrínu Tönju keppa hvor við aðra á laugardaginn Fyrsta alþjóðlega stórmótið í CrossFit hér á landi fer fram í Reykjavík um helgina og í boði eru sæti á heimsleikunum í Madison í haust. 2. maí 2019 08:30
Sleðahundurinn Katrín Tanja ætlaði að verða lögfræðingur og sendiherra Katrín Tanja Davíðsdóttir er eitt stærsta nafnið í CrossFit-heiminum. 9. apríl 2019 12:00
Esjan og „Steinninn“ bjóða CrossFit fólkið velkomið til Íslands Keppendur á alþjóðlega CrossFit mótinu sem fram fer á Íslandi um komandi helgi er ráðlagt að koma vel útbúin til Íslands. Ein af ástæðunum er fyrsta grein mótsins á föstudaginn kemur. 29. apríl 2019 09:00