Erfiðara gæti orðið að spá fyrir um lægðir vegna 5G-væðingar Kjartan Kjartansson skrifar 29. maí 2019 14:45 Fellibylurinn Ísak undan suðausturströnd Bandaríkjanna árið 2012. Verði veðurgervihnettir ónothæfir vegna 5G-væðingar drægi úr spágetu fyrir slík ofsaveður. Áhrifin næðu líklega til veðurspáa fyrir Ísland. Vísir/EPA
Bandarískar vísindastofnanir hafa varað við því að sendar nýrrar kynslóðar fjarskipta gætu truflað mælingar veðurgervihnatta. Hætta sé á að spágæðum gæti farið aftur um fjörutíu ár vegna þess. Íslenskur sérfræðingur telur 5G-fjarskiptanetið líklega ekki hafa áhrif á gæði skammtímaspáa yfir Íslandi en það gæti komið niður á spám til lengri tíma, þar á meðal um lægðabrautir. Ríki heims búa sig nú undir næstu kynslóð þráðlausra samskipta sem hefur verið nefnd 5G. Hún á að bjóða upp á stóraukinn hraða fyrir snjalltæki sem tengjast þráðlausri farnetstengingu sem jafnast á við ljósleiðaratengingu. Eins á 5G-netið að liðka fyrir svonefndu interneti hluta, tengingu alls konar raf- og heimilistækja við netið. Fjarskiptayfirvöld víða um heim undirbúa nú að bjóða út tíðnir fyrir 5G-netið. Íslensk fjarskiptafyrirtæki hafa þegar tekið fyrstu 5G-sendana í gagnið og Póst- og fjarskiptastofnun hefur tekið frá tíðni fyrir nýju tæknina.Hefðu haft skemmri fyrirvara fyrir fellibylinn Sandy Tíðnisviðið sem 5G-netið verður sent út á er hins vegar áhyggjuefni fyrir vísindamenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og Haf- og loftslagsstofnunina (NOAA). Þeir vara við því að 5G-fjarskiptanetið geti eyðilagt mælingar gervitungla þeirra sem veðurfræðingar reiða sig á til spá fyrir um veður. Þannig varaði Neil Jacobs, starfandi forstjóri NOAA, við því að truflanir af völdum 5G-netsins gætu fært spágæði aftur um allt að fjörutíu ár þegar hann bar vitni fyrir bandarískri þingnefnd. Í Bandaríkjunum er ætlunin að bjóða út fjarskiptatíðnisviðið 24 gígahertz fyrir nýju 5G-tæknina. Það er nálægt tíðninni sem veðurgervitungl sem mælir vatnsgufu í andrúmslofti jarðar styðst, 23,8 gígahertz. Hættan er að gervitunglin túlki 5G-fjarskiptin sem vatnsgufu og veðurspár brenglist af þeim sökum.Sandy olli miklum usla, þar á meðal flóðum á norðausturströnd Bandaríkjanna. Alls fórust rúmlega 230 manns í átta löndumVísir/GettyÍ grein á veðurvefnum Bliku.is kemur fram að næst sé ætlunin að úthluta 5G-tíðnunum 36-37 gígahertzum sem súe notaðar til að mæla regn og snjókomu, 50,2-50,4 sem meti hita í lofthjúpnum og 80-90 gígahertz sem gervihnettir nota til að sjá ský. Bandarísk fjarskiptafyrirtæki hafa hafnað því að hætta sé á ferðum, að sögn Washington Post. Skynjarar nýrra gervihnatta séu ekki eins viðkvæmir fyrir truflunum eins og eldri gerðir sem metnar hafi verið í rannsókn NOAA sem sýndi fram á hættuna á skörun við 5G-tíðnir. Engu að síður sagði Jacobs þingnefndinni að truflunin gæti dregið úr nákvæmni veðurspáa um tæpan þriðjuna. Það væri sambærilegt við spágæði í kringum árið 1980. Evrópska veðurlíkanið hefði ekki getað spáð fyrir um fellibylinn Sandy árið 2012 eins snemma og raunin varð. Fólk hefði því haft skemmri fyrirvara til að búa sig undir storminn eða koma sér burt. Jim Bridenstine, forstjóri NASA, tók í sama streng þegar hann bar vitni fyrir vísindanefnd fulltrúardeildar Bandaríkjaþings. Hann sagði stofnunina telja að miklar líkur séu á að hún eigi eftir að tapa miklu magni gagna þegar 5G-sendar verða orðnir útbreiddir.Sveinn Gauti Einarsson, umhverfisverkfræðingur hjá veðurvefnum Blika.is.Vísir/VilhelmVeðrið kemur úr vestri Sveinn Gauti Einarsson, umhverfisverkfræðingur hjá Bliku, segir að tíðnissviðið sem mögulegt sé að nota sé svo breitt og fjarskiptafyrirtækin á Íslandi svo fá ekki ætti að vera vandamál að halda sig fjarri þeim sem geta truflað veðurathuganir hér. Þar að auki sé Ísland umkringt stórum hafsvæðum þar sem 5G-sendar ættu ekki að hafa truflandi áhrif. Skammtímaspár ættu því ekki að bera skaða af truflunum vestanhafs. Aftur á móti gæti dregið úr nákvæmni veðurspáa þrjá daga fram í tímann og lengur ef rakamælingar gervihnatta yfir stórum hluta Norður-Ameríku yrðu ónothæfar. Ástæðan er sú að nær allt veður á Íslandi berst hingað úr vestri. Minni spágæði í Norður-Ameríku myndu því gera íslenskum veðurfræðingum erfiðara að spá fyrir um lægðir sem myndast á þeim slóðum. „Það væri sennilega erfiðast að spá lægðabrautinni, hvert lægðirnar fara. Þá get ég ímyndað að þá væri spáð roki og rigningu eftir fjóra daga en síðan færi lægðin sunnar og það væri bara fínt veður. Eins hversu mikið lægðir dýpka,“ segir Sveinn Gauti. Þannig fengju Íslendingar skemmri fyrirvara en áður þegar djúpar lægðir nálgast landið úr vestri.Þorleifur Jónasson, forstöðumaður tæknideildar Póst- og fjarskiptastofnunar.Vísir/VilhelmGætu boðið út 5G-tíðnir á næsta ári Fjarskiptastofnanir eru meðvitaðar um mögulega skörun á milli 5G-tíðninnar og þeirra sem veðurgervihnettir reiða sig á. Málefnið verður meðal annars tekið fyrir á ráðstefnu Alþjóðafjarskiptastofnunarinnar sem fer fram síðar á þessu ári. Þar verður reynt að tryggja að veðurgervihnettir fái nógu mikið olnbogarými til að þeir geti gegnt hlutverki sínu. Þorleifur Jónasson, forstöðumaður tæknideildar Póst- og fjarskiptastofnunar, segir að Ísland sé í samstarfi við Evrópuþjóðir um að samræma tíðnisvið fyrir 5G-tæknina. Þegar þjóðirnar funduðu í fyrra og ræddu um 24-27 gígahertz tíðnisviðið hafi heilmikil umræða skapast um hættuna á að það gæti truflað veðurathuganir. Upphaflegri tillögu um nýtingu á tíðnisviðinu hafi verið breytt vegna þessara sjónarmiða og segist Þorleifur telja að Evrópa sé í góðum málum hvað þetta varðar. „Við erum í rauninni alveg í takti við Evrópu. Tíðnisviðið var takmarkað og sett tæknileg skilyrði varðandi sendistyrk og annað slíkt sem ella hefði haft áhrif,“ segir hann. Tilraunir fjarskiptafyrirtækjanna með 5G-senda eru mun neðar á tíðnisviðinu en gervitunglin, í kringum 3,7 gígahertz. Þorleifur segir að útboð á tíðnisviðum fyrir 5G sé í farvatninu. Það gæti hafist fyrri hluta næsta árs.Innreið 5G-tækninnar á fjarskiptamarkaði á að hefjast á allra næstu árum og mánuðum. Hún á að fela í sér stóraukinn hraða þráðlausra fjarskipta.Vísir/EPA
Veður Vísindi Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira