Litríkur laugardagur í Laugardalnum The Color Run kynnir 27. maí 2019 13:45 JóiPé og Króli skemmta þáttakendum í Color Run litahlaupinu á laugardaginn.
Næstkomandi laugardagur verður litríkur í Laugardalnum þegar The Color Run litahlaupið fer fram. Aðeins nokkur hundruð miðar eru óseldir en gert er ráð fyrir að 8.000 manns taki þátt í skemmtuninni. Litahlaupið er 5 km löng skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem þátttakendur eru litaðir með litapúðri eftir hvern kílómetra. Við endamarkið verður mikil fjölskylduskemmtun með litapúðursprengingum.Upplifunin aðal máliðThe Color Run er ein stærsta viðburðasería í heimi, haldin í meira en 300 borgum í yfir 40 löndum víðsvegar um heiminn. Ólíkt flestum öðrum hlaupum snýst The Color Run ekki um að koma í mark á sem skemmstum tíma heldur að njóta upplifunar litahlaupsins. Þátttakendur hefja hlaupið í hvítum bol en verða í öllum regnbogans litum þegar endamarkinu er náð. Hlaupið hefst og endar á grassvæðinu gengt Glæsibæ og opnar viðburðarsvæðið kl. 9.00, upphitun hefst kl. 9.30, Friðrik Dór stígur á svið kl. 10.15 og fyrstu hlauparar ræstir af stað kl. 11.00 og svo ræst í nokkur hundruð manna hópum á þriggja mínútna fresti.Litabombupartý með JóaPé og KrólaMikil fjölskylduskemmtun með tilheyrandi litadýrð verður í Laugardalnum að hlaupi loknu með ýmsum skemmtiatriðum. JóiPé og Króli skemmta þátttakendum í litabombupartýinu ásamt plötusnúðnum Kidda Bigfoot. Kynnar og gleðigjafar verða Siggi Hlö og Eva Ruza eins og undanfarin ár. Miðahafar eru hvattir til að sækja hlaupagögn sín í The Color Run búðina sem verður opin í verslun Hagkaup í Smáralind frá miðvikudegi til föstudags. Opnunartími verður frá kl. 10 til 19 á miðvikudag, 12 til 18 á fimmtudag (Uppstigningardag) og 10 til 19 á föstudag. Allar nánari upplýsingar um hlaupið má finna á vefsíðunniwww.thecolorrun.isÞessi kynning er unnin í samstarfi við The Color Run.
Heilsa Mest lesið Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Lífið „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Lífið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Karlmennskan rís úr öskunni Lífið Alan Carr á Íslandi Lífið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira