Messi bjargaði stigi fyrir Argentínu úr VAR víti Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 20. júní 2019 07:15 Messi jafnaði metin úr vítaspyrnu vísir/getty Lionel Messi tryggði Argentínumönnum stig gegn Paragvæ í Suður-Ameríkukeppninni í nótt með marki úr vítaspyrnu eftir myndbandsdómgæslu. Argentína tapaði fyrsta leik sínum í mótinu og þurfti því að sýna betri hliðar í nótt. Það gekk ekki nógu vel því á 37. mínútu kom Richard Sanchez Paragvæ yfir eftir frábæran sprett Miguel Almiron upp völlinn. Í seinni hálfleik fékk Argentína vítaspyrnu. Ivan Peris fékk boltann í sig innan vítateigs, enginn á vellinum bað um vítaspyrnu en myndbandsdómaranum fannst boltinn fara í hendina á Peris og dæmdi víti. Messi fór á punktinn og jafnaði leikinn. Stuttu seinna var Paragvæ dæmd vítaspyrna en Franco Armani í marki Argentínu varði frá Derlis Gonzalez. Argentína er á botni B-riðils með eitt stig úr tveimur leikjum líkt og Katar. Argentínumenn mæta Katar í lokaleiknum og þurfa sigur þar ef þeir ætla ekki að detta úr keppni strax að lokinni riðlakeppninni. Copa América Fótbolti
Uppgjörið: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn