Draumabyrjun hjá Úrúgvæ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. júní 2019 11:15 Cavani fagnar eftir að hafa komið Úrúgvæ í 2-0. vísir/getty Úrúgvæ rúllaði yfir Ekvador, 4-0, í C-riðli Suður-Ameríkukeppninnar í gær. Úrúgvæar urðu Suður-Ameríkumeistarar 2011 og þykja líklegir til afreka í ár. Nicolás Lodeiro kom Úrúgvæ yfir eftir sex mínútna leik. Á 24. mínútu gaf José Quintero Lodeiro olnbogaskot og var rekinn af velli. Edinson Cavani tvöfaldaði forskot Úrúgvæ þegar hann klippti boltann í netið eftir hornspyrnu á 33. mínútu. Luis Súarez skoraði svo þriðja markið mínútu fyrir lok fyrri hálfleiks. Seinni hálfleikurinn var öllu rólegri. Aðeins eitt mark var skorað og það var afar klaufalegt sjálfsmark Arturo Mina. Lokatölur 4-0, Úrúgvæ í vil. Næsti leikur Úrúgvæ er gegn Japan á fimmtudaginn. Á föstudaginn mætir Ekvador Síle. Copa América Fótbolti
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn