Shouse tekur skóna af hillunni og spilar með Álftanesi í vetur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. júní 2019 19:28 Við undirritun samningsins. Með Shouse á myndinni eru Þorgeir Blöndal og Brynjar Magnús Friðriksson. mynd/álftanes
Justin Shouse hefur skrifað undir samning við Álftanes og mun spila með liðinu í 1. deildinni á næsta tímabili. Shouse lagði skóna á hilluna 2017 en ætlar að taka slaginn með Álftnesingum í vetur. Álftanes vann 2. deildina á síðasta tímabili. Þjálfari liðsins er Hrafn Kristjánsson en Shouse spilaði undir hans stjórn hjá Stjörnunni og var svo aðstoðarmaður hans tímabilið 2017-18. Shouse hefur verið á Íslandi frá árinu 2005. Hann var spilandi þjálfari hjá Drangi í eitt ár og lék svo með Snæfelli í tvö ár. Fyrir tímabilið 2008-09 gekk Shouse í raðir Stjörnunnar. Hann lék þar í níu ár. Treyja hans, númer 12, var hengd upp í rjáfur í Ásgarði fyrr á þessu ári. Shouse er stoðsendingahæsti leikmaður efstu deildar karla á Íslandi frá upphafi. Hann varð fjórum sinnum bikarmeistari, einu sinni með Snæfelli og þrisvar sinnum með Stjörnunni. Hann var valinn besti leikmaður efstu deildar 2012 og 2013 og besti erlendi leikmaður deildarinnar 2010. Þá stýrði hann kvennaliði Snæfells til sigurs í 1. deild tímabilið 2007-08. Shouse fékk íslenskan ríkisborgararétt 2011. Hann lék fjóra leiki fyrir íslenska landsliðið.
Dominos-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti England - Argentína | Messi mætir ensku ljónunum í fyrsta sinn Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum“ Fótbolti Fleiri fréttir Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Sjá meira