Kanslarinn nötraði aftur í Berlín Kristín Ólafsdóttir skrifar 27. júní 2019 12:24 Angela Merkel sést hér halda handleggjunum þétt að sér, að því er virðist til að hafa heimil á skjálftanum. Vísir/EPA
Angela Merkel kanslari Þýskalands fékk skjálftakast á viðburði í Berlín í morgun. Þetta er í annað skipti á átta dögum sem Merkel sést skjálfa eins og hrísla við opinber störf. Merkel fékk fyrra skjálftakastið á fundi með Volodymyr Zelensky forseta Úkraínu í Berlín í síðustu viku. Þá vöknuðu strax áhyggjur af heilsufari kanslarans, og þeirra gætir aftur í kjölfar seinna skjálftakastsins nú. Í myndbandi sem fréttaveitan Reuters birti í morgun má sjá Merkel við hlið Frank Walter Steinmeier forseta Þýskalands þar sem þau kynntu nýjan dómsmálaráðherra, Christine Lambrecht, við hátíðlega athöfn. Merkel skelfur greinilega og heldur handleggjunum þétt að sér, að því er virðist til að hafa hemil á skjálftanum.Germany's Merkel seen shaking for second time this month. More here: https://t.co/7XidSxNHtk pic.twitter.com/3NS3CxIloq— Reuters Top News (@Reuters) June 27, 2019 Talsmaður Merkel hefur tjáð erlendum fjölmiðlum í dag að ekkert ami að kanslaranum. Í fyrra skiptið rakti Merkel skjálftann sjálf til ofþornunar og sagðist líða afar vel eftir að hafa fengið sér nokkur vatnsglös. Þess ber að geta að afar heitt er í Berlín um þessar mundir en methitabylgja gengur nú yfir Evrópu.
Þýskaland Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Borgarbúar fá annan góðviðrisdag Veður Níu gistu fangageymslur í nótt Innlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Erlent Fleiri fréttir Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Sjá meira