Fortíðarþrá í nýju myndbandi GKR Sylvía Hall skrifar 2. júlí 2019 15:17 Lagið fjallar um æskuna og það að fullorðnast. GKR
Tónlistarmaðurinn GKR hefur gefið út tónlistarmyndband við lagið SKROLLA en lagið er nýjasta smáskífa hans. Tónlistarmyndbandið gerist að stórum hluta í miðbæ og Vesturbæ Reykjavíkur á æskuslóðum Gauks. Textinn fjallar um æskuna og að fullorðnast, það að líta til baka á gömlu tímana með hlýhug og sjá hve margt hefur breyst. Stórfyrirtækið COMPANY 3 í New York var fengið til þess að sjá um litaleiðréttingu á myndbandinu og var það það Joseph Bicknell sem hafði umsjón með því. Bicknell þessi er einstaklega hæfileikaríkur í sínu fagi og hefur litaleiðrétt tónlistarmyndbönd fyrir ASAP Rocky og auglýsingar fyrir Nike og Mercedes.Myndbandið ætti að vekja upp nostalgíu hjá ansi mörgum.SkjáskotSjoppuferðir og 70 mín Leikstjórn var í höndum þeirra Álfheiðar Mörtu Kjartansdóttur og Magnúsar Andersen og fangar myndbandið texta lagsins vel. Það fjallar að miklu leyti um æskuna og vekur upp sterka nostalgíu tilfinningu hjá áhorfandanum, sérstaklega þeim sem er af sömu kynslóð og Gaukur. Hátt í tuttugu ungir krakkar fóru með hlutverk í myndbandinu stóðu sig ótrúlega vel að sögn leikstjóra. Þar má sjá hversdagsleikann sem flestir kannast við; íþróttaæfingar, sjoppuferðir og 70 mínútur í túbusjónvarpi. Myndbandið er aðgengilegt á YouTube og þá er það einnig komið á Spotify.Klippa: GKR - Skrolla
Menning Mest lesið Brynja Dan og Jóhann selja slotið eftir breytingar Lífið Stjörnulífið: „Já, ég er klámfíkill“ Lífið Úr Eurovision í jógað: „Var ekki nógu góð við sjálfa mig eftir þetta“ Lífið Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Lífið Quang Le „virkilega indæll og mjög næs náungi“ Lífið Brynja Dan og Jóhann keyptu glæsihús í Garðabæ Lífið „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Lífið Maturinn í Ofurskálinni: Vængirnir étnir í tonnatali Lífið Listapör, dansfjölskylda og rjómi senunnar á Garðinum Lífið Fram, fram, framakonur Lífið Fleiri fréttir Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira