Innkalla Volvo XC90 vegna hættu á morknun Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. júlí 2019 08:52 Bíltegundin sem um ræðir. Brimborg
Bílaumboðið Brimborg þarf að innkalla á annað hundrað Volvo lúxusjeppa. Ástæða innköllunarinnar er að kælivatnshosa í bílunum, sem eru af tegundinni XC 90 og árgerð 2016, getur morknað vegna hita og rakabreytinga. Volvo XC90 er margverðlaunaður, var meðal annars útnefndur Bíll ársins á Íslandi árið 2016. Bílarnir þurfa því að undirgangast viðgerð þar sem skipt verður um kælivatnshosuna í öllum bílunum, sem eru alls 165 talsins hér á landi. Fram kemur á vef Neytendastofu að viðkomandi bifreiðaeigendum verði tilkynnt um innköllunina bréfleiðis. „Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa,“ eins og segir á vef stofnunarinnar.Þrátt fyrir að þess sé ekki getið má ætla að um alþjóðlega innköllun að ræða. Þannig var greint frá því í apríl á þessu ári að Volvo hafi innkallað rúmlega 34 þúsund bifreiðar sömu tegundar vegna áþekkrar hættu. Þá greindu erlendir miðlar frá því í gær að Volvo þyrfti að innkalla rúmlega 500 þúsund bíla vegna galla sem í einstaka jaðartilfellum getur valdið eldhættu.
Bílar Innköllun Neytendur Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira