Æfingar Lionel Messi eru enginn sandkassaleikur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. ágúst 2019 22:30 Vinirnir Luis Suarez og Lionel Messi. Getty/David Price
Lionel Messi missti af fyrsta leik tímabilsins í spænsku deildinni vegna meiðsla og Barcelona varð þar að sætta sig við 1-0 tap á móti Athletic Bilbao. Það fer ekkert á milli að Barca liðið saknaði argentínska snillingsins sem var með 36 mörk og 15 stoðsendingar í 34 deildarleikjum á síðustu leiktíð. Það lítur út fyrir að Lionel Messi muni ekki missa af fleirum leikjum ef marka má nýtt myndband af síðustu æfingum hans. Lionel Messi sést þar undirbúa sig fyrir komandi tímabil með því að æfa á fullu í sandi. Þar má sjá hann taka spretti og æfa bæði tækni og skot. Argentínumaðurinn ætlar sér greinilega stóra hluti í vetur. Messi hefur fengið tíma til að æfa einn síðustu daga. Hann er koma sér aftur af stað eftir stutt sumarfrí en hann spilaði náttúrulega með argentínska landsliðinu í Copa America í sumar. Messi meiddist á kálfa snemma á undirbúningstímabilinu en nýtir sér eflaust sandinn til að minnka álagið á fæturnar. Eins og Skagamenn þekkja frá fornri tíð þá er það ekki slæmur undirbúningur að spila fótbolta á sandi á undirbúningstímabilinu. Barcelona glímir við mikil meiðsli í leikmannahópnum og þessar jákvæðar fréttir af Messi koma því á góðum tíma. Luis Suarez og Ousmane Dembele munu báðir missa af leiknum á móti Real Betis á Camp Nou á sunnudaginn Það er þó ekki búist við að Lionel Messi verði í byrjunarliðinu en hann getur breytt miklu fyrir liðið ef hann kemur inná.
Spænski boltinn Mest lesið „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Enski boltinn „Óreyndir dómarar sem falla í þessa gryfju“ Íslenski boltinn Toppurinn á ferlinum hingað til en getur gert betur Sport Heimir og Dean sendir í sturtu eftir læti á hliðarlínunni Íslenski boltinn Bale af golfvellinum og á skjáinn Enski boltinn Bað um að grátandi krakka yrði vísað af vellinum Sport Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Enski boltinn Enska augnablikið: Sá allra svalasti Enski boltinn Donnarumma skilinn eftir heima Enski boltinn „Leyfa því að koma og nýta það á góðan hátt sem orku“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg seld til Freiburg Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn „Óreyndir dómarar sem falla í þessa gryfju“ „Leyfa því að koma og nýta það á góðan hátt sem orku“ „Var farinn að krampa upp í öllum vöðvum líkamans“ Heimir og Dean sendir í sturtu eftir læti á hliðarlínunni Donnarumma skilinn eftir heima Kolbeinn tryggði stigin þrjú Uppgjörið: FH - ÍA 3-2 | Ótrúleg endurkoma heimamanna í Kaplakrika Uppgjörið: KR - Afturelding 2-1 | Mosfellingar í fallsæti eftir tap í Vesturbænum Spánn skiptir þjálfaranum út Fengu loksins leyfi til að spila spænskan deildarleik í Miami Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Heimi fannst Arnar byrja of bratt með Ísland Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Sjáðu dramatísku sigurmörkin og Stjörnumenn skella Víkingum Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Glasner: Myndi ekki skipta á skildinum fyrir sæti í Evrópukeppni félagsliða „Brugðumst vel við þeim aðstæðum sem leikurinn henti í okkur“ „Rýr stigasöfnun í deildinni vissulega áhyggjuefni“ Halldór: Góð ákvörðun hjá þeim að hætta spila boltanum Barcelona rúllaði yfir Como Sjá meira