Fram hafði betur í Laugardalnum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 6. september 2019 22:01 Framarar fögnuðu sigri í kvöld. vísir/ernir
Þróttur Reykjavík heldur áfram að tapa leikjum í Inkassodeild karla en Þróttarar töpuðu fimmta leiknum í röð í kvöld. Þróttur tók á móti Fram á Eimskipsvellinum í Laugardal í kvöld í slag liða sem sitja um miðja deild í Inkasso deildinni. Gestirnir úr Safamýrinni fengu upplagt tækifæri til þess að komast yfir á 23. mínútu þegar vítaspyrna var dæmd á Þrótt. Arnar Darri Pétursson felldi Helga Guðjónsson í teignum og vítaspyrna dæmd. Arnar bætti fyrir brotið með því að verja spyrnuna frá Helga. Aðeins fjórum mínútum seinna komst Fram þó yfir þegar Hilmar Freyr Bjartþórsson skallaði boltann í netið og var það eina markið í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik varð róðurinn þyngri fyrir heimamenn þegar Archie Nkumu var sendur af velli með sitt seinna gula spjald á 63. mínútu. Þrátt fyrir það náðu röndóttir að jafna metin, Róbert Hauksson skoraði á 78. mínútu. Jökull Steinn Ólafsson varð hetja Framara þegar hann skoraði sigurmark leiksins á 84. mínútu. Lokatölur í Laugardal urðu 2-1 fyrir Fram. Eins og áður segir var þetta fimmti tapleikur Þróttar í deildinni í röð og þeir sitja áfram í 8. sæti deildarinnar með 21 stig. Framarar fara upp í sjötta sætið með 30 stig með sigrinum. Upplýsingar um úrslit og gang mála eru fengnar frá Fótbolta.net.
Inkasso-deildin Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Mál Alberts truflar landsliðið ekki Fótbolti Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Stuðningsmenn Bröndby enn á ný í vandræðum Fótbolti Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Enski boltinn Fleiri fréttir Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Sjá meira