Spilakassahjónin neita sök Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. september 2019 14:30 Sakborningur mætir í dómsal í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Vísir/Kolbeinn Tumi
Pólsk hjón sem sæta ákæru fyrir peningaþvætti neituðu sök við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hjónin eru ákærð fyrir peningaþvætti með því að hafa á tímabilinu janúar 2013 til desember 2017 tekið, við, nýtt, umbreytt eða aflað sér ávinnings af refsiverðum brotum upp á rúmlega 60 milljónir króna.Er það mismunurinn á milli rekjanlegra útgjalda þeirra á tímabilinu, auk innistæðna og haldlagðs reiðufjár, alls 97,8 milljónir króna og tekna þeirra á sama tímabili samkvæmt opinberum skráningum, alls 37,6 milljónir króna.Í ákærunni segir að ljóst sé að framtaldar tekjur þeirra gætu aldrei staðið undir lifnaði þeirra og eignamyndun. Hjónin mættu ásamt skipuðum verjendum sínum í dómsal í morgun. Þá var túlkur með í för sem þýddi orð dómara jafnóðum. Verjendur í málinu höfðu vegna tæknilegra örðugleika ekki getað nálgast gögn í málinu. Lagði hvorugt þeirra því fram greinagerð en fengu frest til að bregðast við ákærunni skriflega til seinni hluta nóvember. Maðurinn var í hópi fimm Pólverja sem voru handteknir í viðamiklum aðgerðum lögreglu í desember.Vísir/ErnirFimm handteknir Maðurinn er einn þeirra sem var handtekinn árið 2017 í svokölluðu Euro Market-máli en lögreglan komst á snoðir um meint peningaþvætti hjónanna eftir húsleit á heimili þeirra í umfangsmiklum aðgerðum fyrir tveimur árum.Lögregla handtók manninn og fjóra Pólverja til viðbótar hér á landi í desember 2017 og úrskurðaði þrjá í gæsluvarðhald grunaðir um stórfelldan innflutning og framleiðslu fíkniefna, fjársvik og peningaþvætti. Aðrir angar málsins eru enn til rannsóknar hjá lögreglu en henni miðar vel og er á lokastigum samkvæmt upplýsingum fréttastofu.Hyundai Tucson árgerð 2017 en þó ekki sá sem pólsku hjónin greiddu út í reiðufé.Staðgreiddi jeppa hjá BLMeðal þeirra útgjalda pólskra hjóna sem héraðssaksóknari hefur ákært fyrir peningaþvætti og telur að sé ekki trúverðugar skýringar á eru 33,4 milljóna króna úttektir í spilakössum og kaup eiginkonunnar á nýjum Hyundai Tucson hjá BL að andvirði 4,3 milljóna, sem hún greiddi fyrir með reiðufé.Til þess að leggja mat á skýringar hjónanna um ávinning af notkun spilakassa lagðist lögregla í greiningarvinnu á mögulegum spilatíma mannsins í spilasölum. Miðað var við staðsetningu út frá símatækjum og gögn úr staðsendingartækjum. Samkvæmt greiningunni var áætlaður spilatími eiginmannsins talinn vera að meðaltali á bilinu 46 til 311 mínútur á dag.Skýring þeirra á ávinningi af spilakössum var metin ómöguleg af dósent við Háskóla Reykjavíkur. Áætlað tap hefði átt að vera 145 milljónir króna miðað við spilatíma hans og varfærnasta áætlun um tap var upp á ellefu milljónir króna.Bíllinn hefur verið kyrrsettur meðan málið er til meðferðar dómstólar auk þess fjár sem lögregla lagði hald á, sem nemur milljónum króna.Boðað var til blaðamannafundar vegna rannsóknarinnar í Euro Market-málinu í desember síðastliðnum 2017. Pólska og hollenska lögreglan sat einnig fundinn. Málið sem þingfest var í dag kom til við rannsókn þess máls.Fréttablaðið/ERNIRNafnlausar innlagnir í spilakassaLíkt og kom fram í fyrri frétt Vísis af málinu er í nýlegri aðgerðaráætlun gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka sem kom út í ágúst fjallað um veikleika þegar komi að spilakössum. Þar er minnst á falska vinninga. Þannig geti fólk nafnlaust lagt pening inn í spilakassann, leyst út vinning án þess að spila og svo leggja upphæðina þannig inn á banka. Með þeim hætti sé hægt að búa til lögmæta slóð peninga.
Dómsmál Peningaþvætti í Euro Market Tengdar fréttir Ákærð fyrir peningaþvætti en segjast einfaldlega heppin í spilakössum Pólsk hjón sem sæta ákæru héraðssaksóknara fyrir peningaþvætti gefa þá skýringu að þau hafi lifað hátt vegna þess hve vel manninum gekk að vinna í spilakössum. 24. september 2019 12:31 33 milljóna úttektir í spilasölum og 4,3 milljóna bíll greiddur með reiðufé Meðal þeirra útgjalda pólskra hjóna sem héraðssaksóknari hefur ákært fyrir peningaþvætti og telur að sé ekki trúverðugar skýringar á eru 33,4 milljóna króna úttektir í spilakössum og kaup eiginmannsins á Hyunday Tucson að andvirði 4,3 milljóna, sem hann greiddi fyrir með reiðufé. 24. september 2019 20:30 Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Fleiri fréttir Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Sjá meira
Ákærð fyrir peningaþvætti en segjast einfaldlega heppin í spilakössum Pólsk hjón sem sæta ákæru héraðssaksóknara fyrir peningaþvætti gefa þá skýringu að þau hafi lifað hátt vegna þess hve vel manninum gekk að vinna í spilakössum. 24. september 2019 12:31
33 milljóna úttektir í spilasölum og 4,3 milljóna bíll greiddur með reiðufé Meðal þeirra útgjalda pólskra hjóna sem héraðssaksóknari hefur ákært fyrir peningaþvætti og telur að sé ekki trúverðugar skýringar á eru 33,4 milljóna króna úttektir í spilakössum og kaup eiginmannsins á Hyunday Tucson að andvirði 4,3 milljóna, sem hann greiddi fyrir með reiðufé. 24. september 2019 20:30