Breytingar á yfirstjórn CRI Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. október 2019 11:53 Ingólfur Guðmundsson og Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir. CRI
Ingólfur Guðmundsson hefur verið ráðinn forstjóri fyrirtækisins Carbon Recycling International, sem sérhæfir sig í búnaði til að framleiða endurnýjanlegt eldsneyti og vistvæna efnavöru úr kolefni og vetni. Þá hefur Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir verið ráðin aðstoðarforstjóri fyrirtækisins. Greint er frá breytingunum í yfirstjórn CRI í tilkynningu frá félaginu. Þar er þess getið að Ingólfur hafi setið í stjórn félagsins frá því í fyrra en tekið við forstjórastöðunni af Sindra Sindrasyni í júní síðastliðnum. Margrét hóf störf við CRI árið 2015 og hefur setið í framkvæmdastjórn fyrirtækisins frá árinu 2017. Í tilkynningunni er ferill þeirra beggja jafnframt rakinn. Ingólfur er rekstrarhagfræðingur og löggiltur verðbréfamiðlari, auk þess sem hann var einn af stofnendum iKorts og framkvæmdastjóri þess um tíma. Ingólfur einnig setið í stjórnum fyrirtækja og sjóða og situr nú meðal annars í stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna og stjórn Eyris Invest. Margrét er iðnaðarverkfræðingur og lauk jafnframt M.Sc. prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. prófi í orkukerfum og orkustjórnun frá School of Renewable Energy Science. Áður en hún hóf störf hjá CRI starfaði hún hjá Landsbankanum og Verkfræðistofu Guðmundar og Kristjáns (nú Mannvit) með áherslu á stjórnun, fjármögnun og orkutengd verkefni. Hún hefur einnig setið í ýmsum ráðum og stjórnum í atvinnulífinu.
Loftslagsmál Tækni Vistaskipti Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira