Kona fannst látin með kyrkislöngu hringaða um sig Samúel Karl Ólason skrifar 1. nóvember 2019 13:09 Snákur af sömu tegund og sá sem er talinn hafa banað konunni. Þeir finnast í suðaustur Asíu. Vísir/Getty
Lögregluþjónar í Indiana í Bandaríkjunum fundu á miðvikudaginn lík konu sem 2,4 metra löng kyrkislanga var búin að hringa sig um. Don Munson, fógeti sýslunnar sem um ræðir, fann konuna, Lara Hurst, í húsi í hans eigu. Um 140 snákar fundust í húsinu og virðist sem að Hurst hafi verið þar til að huga að tuttugu snákum sem hún átti í húsinu, sem hafði verið breytt til að halda þar snáka.Ekki liggur fyrir að snákurinn hafi orðið konunni að bana en talið er að svo sé. Krufning mun leiða sannleikann í ljós. Fógetinn Munson býr í næsta húsi og kom hann að Hurst á miðvikudaginn. Samkvæmt héraðsmiðlinum Journal and Courier sagði hann lögreglu að auðvelt hefði verið að ná snáknum af henni.Í fréttinni segir að Munson hafði sjálfur alið snáka lengi. Journal and Courier rifjar upp sögu frá 2001 þegar hann fór í grunnskóla á svæðinu, eftir boð frá skólastjóranum, og sýndi börnum þar fjögurra metra langan snák sem var í eigu hans. Munson sagði börnunum að hann ætti 52 snáka. Munson vildi ekki fara út í það af hverju allir þessi snákar hafi verið í húsi hans.
Bandaríkin Dýr Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Sjá meira