Rooney mætir á bekkinn hjá Derby á laugardaginn Anton Ingi Leifsson skrifar 27. nóvember 2019 16:30 Rooney í leik með DC United en nú er hann á leið heim, til Englands. vísir/getty
Wayne Rooney verður að öllum líkindum mættur á varamannabekkinn hjá Derby á laugardaginn er liðið spilar við QPR í ensku B-deildinni. Rooney samdi við Derby í síðasta mánuði en hann hefur undanfarin ár leikið með DC United í MLS-deildinni. Nú snýr hann aftur til Englands og samdi við Derby til næstu átján mánaða. Rooney mun ekki bara spila með Derby heldur verður hann í þjálfarateymi Phillip Cocu. Hann getur ekki spilað með Derby fyrr en í janúar en gæti verið í þjálfarateyminu þangað til.See you on Saturday, Wayne. @WayneRooney will be at #DCFCvQPR on Saturday - and you can be too! Tickets https://t.co/oWA6Ezwh5d — Derby County (@dcfcofficial) November 27, 2019 Derby steinlá í vikunni er Derby tapaði 3-0 fyrir Fulham á útivelli en Cocu staðfesti á blaðamannafundi fyrir helgina að hinn 34 ára gamli Rooney gæti verið á bekknum á laugardag. Rooney hefur heimsótt Derby í tvígang eftir að hafa samið við félagið en hann er nýkominn heim frá Dúbaí þar sem hann fékk að fara í frí með fjölskyldunni. Derby er í 13. sæti deildarinnar með 24 stig, þó einungis fimm stigum frá umspilssæti um sæti í deild þeirra bestu, en Derby fór í úrslitaleik umspilsins á síðustu leiktíð.
Enski boltinn Mest lesið „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur Íslenski boltinn Eiginkona þjálfara hjá Chiefs skotin Sport Mbappé sár eftir HM Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-0 | Ágúst Orri hetjan Íslenski boltinn Endurkomur hjá kærustuparinu: „Þakklát og hamingjusöm“ Sport Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Körfubolti Samstarf við rússneskt veðmálafyrirtæki varð Pirlo að falli Fótbolti Rosenborgarar Freys óstöðvandi Fótbolti Fleiri fréttir Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Sjá meira