Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Ágúst Orri Arnarson skrifar 17. júlí 2026 14:13 Szoboszlai smellti sjálfu þegar nýr samningur hafði verið undirritaður. Andrew Powell/Liverpool FC via Getty Images Dominik Szoboszlai hefur endurnýjað samning sinn við enska knattspyrnufélagið Liverpool til ársins 2031. Fyrri samningur hans hefði runnið út næsta sumar og ungverski miðjumaðurinn var sterklega orðaður við brottför til Real Madrid.
Hinn 25 ára gamli Szoboszlai hefur ákveðið að halda kyrru fyrir á Anfield og taka slaginn með nýja stjóranum, Spánverjanum Andoni Iraola. Næsta tímabil verður hans fjórða hjá Liverpool en Szoboszlai kom til félagsins frá RB Leipzig sumarið 2023. Á síðasta tímabili sprakk Szoboszlai út og var að margra mati besti leikmaður Liverpool, þegar hann skoraði 13 mörk og gaf 12 stoðsendingar í 53 leikjum þrátt fyrir að þurfa oft að spila sem hægri bakvörður. Á fyrsta tímabilinu hjá Liverpool varð Szoboszlai deildabikarmeistari, á öðru tímabilinu varð hann Englandsmeistari en Liverpool vann engan titil á síðasta tímabili. Stuðningsmenn Liverpool óttuðust að hann færi sömu leið og Trent Alexander-Arnold og Ibrahima Konate, frítt til Real Madrid þegar samningur hans rynni út næsta sumar. Ljóst er að ekkert verður af því. "I'm really, really happy. Also for me, I know this is like a big family and I want to be part of that."Head to All Red Video to watch Dominik Szoboszlai's interview after signing a new contract with the club 🙌— Liverpool FC (@LFC) July 17, 2026
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Enski boltinn Fleiri fréttir Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Sjá meira