Starfsmönnum Hvíta hússins geti verið gert að bera vitni Atli Ísleifsson skrifar 26. nóvember 2019 07:29 Don McGhan starfaði sem lögmaður forsetaembættisins. Getty
Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að starfsmenn Hvíta hússins geti verið neyddir til að bera vitni fyrir þingnefndum í tengslum við málarekstur þingsins gegn forsetanum en hingað til hefur Hvíta húsið borið við friðhelgi. Úrskurðinum er sérstaklega beint að Don McGhan, fyrrverandi lögmanni forsetaembættisins, og þarf hann því að bera vitni í rannsókn um aðkomu Rússa að forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2016. Úrskurðurinn hefur þó einnig áhrif á rannsókn þingsins varðandi samskipti Donald Trump forseta og Úkraínuforseta. McGhan, sem lét af störfum í október 2018, var stefnt fyrir rannsóknarnefndina í maí síðastliðinn en þá neitaði hann að taka við stefnunni og þar við sat. Dómsmálaráðuneytið hefur þegar lýst því yfir að þessari ákvörðun dómarans verði áfrýjað og því mun það dragast enn að McGahn beri vitni. Dómarinn tók sérstaklega fram í úrskurði sínum að enginn væri hafinn yfir lög. Þá hafi forsetinn ekki vald til að stöðva aðstoðarmenn sína frá því að bera vitni fyrir þingnefnd, þar sem „forsetar eru ekki kóngar“.
Bandaríkin Rússarannsóknin Ákæruferli þingsins gegn Trump Mest lesið Allt í loft upp í Færeyjum vegna Suðureyjarganga Erlent Níu í lífshættu eftir stunguárásina Erlent Segir hernum að undirbúa árás á Nígeríu Erlent Keypti stól í Góða hirðinum sem reyndist fágætur gripur Innlent Nokkrar milljónir horfnar á örfáum vikum Innlent Ölvaður undir stýri með börn í bílnum Innlent Stúlka fannst á lífi í kassa í órafjarlægð frá heimili sínu Erlent Drónaumferð við herstöð í Belgíu Erlent Fjórir útskrifaðir af spítala en tveir enn í lífshættu Erlent Húsnæðismálin og staða Ríkisútvarpsins Innlent Fleiri fréttir Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni Fjórir útskrifaðir af spítala en tveir enn í lífshættu Drónaumferð við herstöð í Belgíu Allt í loft upp í Færeyjum vegna Suðureyjarganga Níu í lífshættu eftir stunguárásina Margir sagðir særðir eftir árás í Cambridge-skíri Segir hernum að undirbúa árás á Nígeríu Stúlka fannst á lífi í kassa í órafjarlægð frá heimili sínu Kona ákærð fyrir ránið í Louvre Demókratar vilja yfirheyra Andrew Enn staðráðin í að lenda geimförum á tunglinu með Starship Gera sex hundruð gervihnetti fyrir „Gullhvelfinguna“ Sagður hafa skipað hernum að gera árásir í Venesúela Ljóst að D66 varð stærri en flokkur Wilders Grænland, Færeyjar og Álandseyjar fá sæti við borðið Æðsti lögmaður ísraelska hersins segir af sér vegna leka Segir Repúblikönum að beita kjarnorkuúrræðinu Flóttamönnum fækkað úr 125.000 í 7.500 Hundruð þúsunda strangtrúaðra mótmæla herkvaðningu Orðin hæsta kirkja í heimi Öldungadeildin samþykkir að ógilda tollaákvarðanir Trump Andrés ekki lengur prins og látinn yfirgefa heimili sitt Reyndu að fá flugmann Maduros til að aðstoða við handtöku hans Kallar Biden ljótan að utan sem innan og vill hann í fangelsi Sjö hundruð drónum og eldflaugum skotið að Úkraínu Telja Kínverja geta fjarstýrt strætisvögnum af sömu gerð og Strætó notar Fordæmalaus eyðilegging vegna Melissu Losa hreðjatakið í eitt ár Útlit fyrir að hnífjafnt verði í Hollandi í fyrsta skipti Svipt barnabótunum vegna flugmiðakaupa Sjá meira