Sportpakkinn: „Ég vil vinna og sé fyrir mér að ég geti gert það hjá Stjörnunni“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. desember 2019 17:53 Gunnar í Stjörnugallanum. mynd/stöð 2
Stjarnan fékk góðan liðsstyrk í dag þegar Gunnar Ólafsson skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við félagið. Gunnar hefur verið viðloðandi íslenska landsliðið undanfarin misseri og leikið 18 A-landsleiki. Hann lék með Keflavík í fyrra en samdi við Oviedo í spænsku B-deildinni fyrir þetta tímabil. Samningi hans við félagið var sagt upp í síðasta mánuði. „Mér líst mjög vel á að vera kominn í Garðabæinn og er mjög spenntur fyrir þessu öllu,“ sagði Gunnar í samtali við íþróttadeild eftir að skrifaði undir samninginn við Stjörnuna á Mathúsi Garðabæjar í dag. Nokkur lið báru víurnar í Gunnar en Stjarnan varð fyrir valinu. „Það er margt við Stjörnuna sem heillar mig. Þetta er gott félag sem vill gera vel á öllum sviðum og umgjörðin er góð,“ sagði Gunnar sem er uppalinn hjá Fjölni en lék svo í fjögur ár með St. Francis háskólanum í Brooklyn. Stjarnan varð deildar- og bikarmeistari á síðasta tímabili og stefnir á að verða Íslandsmeistari næsta vor. „Það er ein af ástæðunum fyrir því að ég vil vera hér. Ég vil vinna og sé fyrir mér að ég geti gert það hér,“ sagði Gunnar sem byrjar að spila með Stjörnunni í janúar þegar keppni í Domino's deild karla hefst aftur eftir jólafrí. Viðtalið í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.Klippa: Sportpakkinn: Gunnar í Garðabæinn
Dominos-deild karla Sportpakkinn Tengdar fréttir Stjörnumenn bæta við sig landsliðsmanni í körfunni: Gunnar í Garðabæinn Stjarnan vann 43 stiga sigur á Íslandsmeisturum KR í síðustu umferð Domino´s deildar karla og í dag bættu Stjörnumenn landsliðsmanni við leikmannahóp sinn. Garðbæingar eru því til alls líklegir í körfuboltanum í vetur. 4. desember 2019 16:05 Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira
Stjörnumenn bæta við sig landsliðsmanni í körfunni: Gunnar í Garðabæinn Stjarnan vann 43 stiga sigur á Íslandsmeisturum KR í síðustu umferð Domino´s deildar karla og í dag bættu Stjörnumenn landsliðsmanni við leikmannahóp sinn. Garðbæingar eru því til alls líklegir í körfuboltanum í vetur. 4. desember 2019 16:05