35 létu lífið hryðjuverkaárás í Búrkína Fasó Sylvía Hall skrifar 25. desember 2019 12:53 Roch March Christian Kaboré, forseti Búrkína Fasó, sagði árásina villimannslega. Vísir/Getty
35 almennir borgarar létu lífið í Búrkína Fasó í dag í einni mannskæðustu hryðjuverkaárás í landinu á síðustu árum. Af þeim 35 sem létust er 31 kona. Hryðjuverkamenn létu til skarar skríða í morgunsárið þegar þeir óku inn í þorp við herstöð á mótorhjólum. Áttatíu úr hópi þeirra féllu í árásinni en árásin stóð yfir í nokkra klukkutíma. Enginn hefur lýst ódæðinu á hendur sér en hryðjuverk síðustu ár hafa iðulega verið rakin til hreyfinga sem kenna sig við Íslamska ríkið eða Al Kaída og er vitað um hreyfingar á svæðinu sem hafa sterk tengsl við samtökin. Svo mikið mannfall hefur ekki orðið í einni árás undanfarin ár þó árásir hafi verið tíðar á svæðinu. Fyrr í mánuðinum létust í það minnsta fjórtán manns þegar menn vopnaðir skotvopnum hófu skothríð í kirkju í austurhluta landsins. Roch March Christian Kaboré, forseti Búrkína Fasó, sagði árásina villimannslega og þakkaði „hetjulegum viðbrögðum“ hermanna landsins. Tveggja sólarhringa þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í landinu og öllu opinberu jólahaldi aflýst.
Búrkína Fasó Tengdar fréttir Mannskæð skotárás í kirkju í Búrkína Fasó Minnst 14 eru látin eftir skotárás í kirkju í þorpinu Hantoukoura í austurhluta Búrkína Fasó í dag. 1. desember 2019 22:19 Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira
Mannskæð skotárás í kirkju í Búrkína Fasó Minnst 14 eru látin eftir skotárás í kirkju í þorpinu Hantoukoura í austurhluta Búrkína Fasó í dag. 1. desember 2019 22:19