Tæklaði glæpamann og hélt áfram göngutúrnum með hundinn Samúel Karl Ólason skrifar 6. mars 2020 07:41 Maðurinn skutlaði sér á glæpamann á hlaupum.
Lögreglan í Queensland í Ástralíu leitar nú að manni sem hjálpaði við handtöku glæpamanns í gær. Maðurinn var á gangi með hund sinn yfir brú þegar glæpamaðurinn reyndi að hlaupa fram hjá honum. Í stað þess að hleypa glæpamanninum fram hjá sér, stökk maðurinn á hann og dró hann niður í jörðina. Þar hélt hann glæpamanninum þar til lögregluþjóna bar að garði. Maðurinn gaf einum lögregluþjóni fimmu og gekk á brott. Atvikið var fangað á mynd úr þyrlu lögreglunnar. Rekja má atvikið til þess að lögregluþjónar sáu stolin bíl og reyndu að stöðva hann. Þeir sprengdu dekk bílsins og reyndu að brjóta rúðu og ná þannig manninum sem hafði stolið honum. Þjófurinn keyrði þó næstum því á lögregluþjón, keyrði á lögreglubíl og keyrði á brott á mikilli ferð. Hann þurfti þó að stöðva bílinn skömmu seinna og reynda að flýja á tveimur jafnfljótum, með þeim afleiðingum sem nefndar voru hér að ofan. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að mannsins sé leitað, svo hægt sé að verðlauna hann fyrir að stöðva glæpamanninn. Sá hefur meðal annars verið ákærður fyrir notkun og vörslu fíkniefna og að keyra bíl án bílprófs.
Ástralía Mest lesið Flugvél fór út af og öllum brautum lokað Innlent Nýbakaðar mæður í felum því þær viti hvernig kerfið virkar Innlent Rannsökuðu ekki nauðgun og báðu sakborning afsökunar Innlent Ungverjar út í kuldann vegna leka til Rússa Erlent Rannsökuðu meint kynferðisbrot á leikskóla Innlent Fylgi Samfylkingar ekki verið minna í eitt ár Innlent Drengur skar mann í Strætó Innlent LaGuardia lokað vegna áreksturs við slökkviliðsbíl Erlent Fluginu aflýst eftir að vélin rann út af akbraut Innlent „Hætt við því að byggingamarkaðurinn fari í frost“ Innlent Fleiri fréttir Sakar Orbán og félaga um landráð Íranir segja engar viðræður við Trump-liða eiga sér stað Deila á Bandaríkjaforseta fyrir að dansa á gröf rannsakanda Líklegt að Rasmussen verði í oddastöðu eftir kosningar Eigandi OnlyFans látinn Gerir hlé á árásum á Íran Lionel Jospin er látinn Kveikt í sjúkrabílum Gyðinga í London Ungverjar út í kuldann vegna leka til Rússa LaGuardia lokað vegna áreksturs við slökkviliðsbíl Sósíalistinn Grégoire nýr borgarstjóri Parísar Trump og Starmer ræddu Hormuz-sund „Stundum þarftu að auka spennuna til að draga úr spennunni“ Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Sögðu líf Breta í hættu og skutu að breskri herstöð Robert Mueller er látinn Telja Musk hafa vísvitandi ýtt undir gerð kynferðislegra djúpfalsana Íhugar að draga úr hernaði í Íran Stöðvuðu annað meint skuggafley Rússa á Miðjarðarhafi Einn helsti samstarfsmaður Berlusconi látinn Stjórnvöld sögð skoða hernám eða umsátur um Kharg-eyju Formaður systurflokks Sjálfstæðisflokksins vill Noreg í ESB Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Hittler mætir Zielenski í frönskum bæjarstjóraslag Útskrifuð fyrir fimm mánuðum en neitar að fara Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Sjá meira