Martin valdi mörk gegn Val sem sín uppáhalds eftir allt sem gekk á í fyrra Sindri Sverrisson skrifar 13. júní 2020 08:00 Gary Martin staldraði ekki lengi við hjá Val. VÍSIR/DANÍEL
Enski markahrókurinn Gary Martin valdi tvö mörk gegn Val sem sín uppáhalds mörk á ferlinum, í þættinum Topp 5 á Stöð 2 Sport. Viðskilnaður Martin við Val var ekki eins og best verður á kosið en honum var meinað að taka þátt á æfingum liðsins áður en að leiðir skildu svo þegar örfáar vikur voru liðnar af síðasta Íslandsmóti. Hann er nú leikmaður ÍBV og skoraði einmitt bæði mörk ÍBV í 2-1 sigri á Val síðasta haust. Fyrra markið er í næstmestu uppáhaldi hjá Martin: „Þetta var ekki frábært mark en betra en seinna markið. Ég valdi það vegna þess hvernig mér leið, að hafa náð að skora eftir það sem gekk á síðasta sumar. Ég hefði getað valið fimm mörk gegn Val, en það hefði verið svolítið heimskulegt. En markið valdi ég vegna þess hvernig mér leið við að skora það,“ sagði Martin. Hans uppáhalds mark kom hins vegar þegar KR tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn árið 2013, með 2-1 sigri gegn Val á Hlíðarenda þar sem Martin skoraði bæði mörkin. „Mark númer eitt hjá mér er það mikilvægasta sem ég hef skorað og eitt það besta einnig. Þetta var fyrsta markið þegar við tryggðum okkur titilinn með útisigri á Val 2013. Ég var svo heppinn að skora bæði mörkin en fyrra markið er eitt það besta sem ég hef skorað því það gaf okkur forystuna. Fyrir leikmann KR er ekki til betri staður til að sækja sigur á, og það var stórkostleg tilfinning að vinna titilinn og skora bæði mörkin í sigri á Val,“ sagði Martin, en mörkin má sjá hér að neðan. Klippa: Topp 5 - Gary Martin valdi sín bestu mörk
Pepsi Max-deild karla Topp 5 Valur ÍBV Mest lesið Faðir Vonn tjáir sig og vill ekki sjá dóttur sína keppa aftur Sport Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Enski boltinn Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Sport Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Formúla 1 „Má ekkert segja um þessa dómara en þetta var hræðilegt“ Sport Elliði Snær markahæstur í mikilvægum sigri Handbolti Mikilvægur sigur Tindastóls sem fær heimavallarrétt í Evrópu Körfubolti Tárin flæddu þegar Leerdam tróð upp í gagnrýnendur Sport Uppgjörið: Stjarnan 71-74 Haukar | Íslandsmeistararnir tylla sér á toppinn Körfubolti Vonn tjáir sig eftir atvikið óhugnanlega: „Sé ekki eftir neinu“ Sport Fleiri fréttir Freyja með þrennu er Víkingur valtaði yfir Fram Hallgrímur bætist við landsliðshópinn Kristján krækti í einn besta leikmann Bestu deildarinnar Guðmundur Magnússon skiptir úr bláu í grænt Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Sjá meira