Eiginhagsmunir, yfirráð og völd Helga Baldvins Bjargardóttir skrifar 19. júní 2020 08:30 Samtök kvenna um nýja stjórnarskrá er hópur af rúmlega þrettán þúsund og fimm hundruð konum af öllu landinu sem vilja vinna saman að því gera samfélagið okkar betra. Við trúum því að stærstu skrefin sem stjórnvöld geti tekið í átt að réttlátara samfélagi séu að virða niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar frá 20. október 2012 og lögfesta nýju stjórnarskrána. Í kosningunni samþykktu yfir 2/3 hlutar kjósenda að tillögur stjórnlagaráðs skyldu verða grundvöllur nýrrar stjórnarskrár. Af þeim níu þjóðaratkvæðagreiðslum sem haldnar hafa verið hér á landi er þetta sú fyrsta og eina sem Alþingi hefur ekki staðfest. Hvað veldur? Eiginhagsmunir yfirráð og völd eru öflin sem viðhalda öllu misrétti. Við þurfum ný gildi til að vinna að breytingum í átt að raunverulegu jafnrétti þar sem mannréttindi allra eru virt. Tillögur stjórnlagaráðs sem samdar voru í einu lýðræðislegasta ferli sem um getur eru heildstæður samfélagssáttmáli. Það er ekki Alþingis að halda nýju stjórnarskránni í gíslingu eða ætla sér að velja og hafna ákvæðum úr sáttmálanum. Í dag 19. júní á kvenréttindadeginum sjálfum finnst okkur vel við hæfi að konur taki forystuna í baráttunni fyrir nýjum gildum í samfélaginu. Ef það er eitthvað sem við íslenskar konur kunnum, allra kvenna best, þá er það að virkja náttúraflið sem felst í samvinnu okkar og samstöðu þegar gera þarf róttækar breytingar á samfélaginu. Við stjórnarskrárkonur höfum tekið það að okkur að leiða þessar breytingar enda byggja þær á hinum kvenlægu gildum heildarhagsmuna, samvinnu og valddreifingar. Í dag hefjum við fyrstu undirskrifasöfnunina á landsvísu þar sem við krefjumst þess að Alþingi lögfesti nýju stjórnarskrána. Hægt er að skrifa undir hér. Í dag kl. 10:15 frumsýnum við nýtt kynningarmyndband um nýju stjórnarskrána ferlið á bakvið hana og hvar hún stoppaði. Hægt er að horfa á það hér. Í dag kl. 12:00 ætlar hópur kvenna hittast í Mæðragarðinum við Lækjargötu og syngja nokkur lög til heiðurs nýju stjórnarskránni og kvennasamstöðunni. Hægt er að sjá viðburð hér. Allt eru þetta sjálfsprottin verkefni kvenna sem vita að það er þjóðin sem er stjórnarskrárgjafinn og setur valdhöfum mörk en ekki öfugt. Kvenna sem eru til í að virkja krafta sína á alla mögulega og ómögulega vegu til að láta þennan draum verða að veruleika. Því eins og segir í aðfaraorðum nýju stjórnarskrárinnar: “Við sem byggjum Ísland viljum skapa réttlátt samfélag þar sem allir sitja við sama borð. Ólíkur uppruni okkar auðgar heildina og saman berum við ábyrgð á arfi kynslóðanna, landi og sögu, náttúru, tungu og menningu.” Við ætlum ekki að bíða í heilan áratug eftir að nýja stjórnarskráin taki gildi og því krefjumst við aðgerða strax. Höfundur er forman Samtaka kvenna um nýja stjórnarskrá. Self-interest, domination and power The Women's Association of New Constitution is a group of 13,500 women from across the country who want to work together to make our society better. We believe that the biggest steps that the government can take in the direction of a more just society is to respect the outcome of the referendum of October 20, 2012 and legislate the new constitution. In the election, over 2/3 of the electorate agreed that the Icelandic Constitutional Council's proposals should form the basis of a new Constitution. Of the nine referendums that have been held in this country, this is the first and only one that Parliament has not approved. Why is that? Self-interest, domination and power are the forces that maintain all inequality. We need new values to work towards genuine equality where everyone's human rights are respected. The proposals of the Icelandic Constitutional Council, drawn up in one of the most democratic constitutional processes in history, are a comprehensive social charter and not a buffet for the parliamentarians to pick and choose as they please. Today, June 19th on Women's Rights Day, we feel it is appropriate for women to take the lead in the fight for society that is based on new values. If there is anything that we the women of Iceland know how to do, it is to activate the natural force inherent in our cooperation and solidarity when radical changes in society must be made. We the women of the new Constitution have taken it upon us to lead these changes as they are based on the feminine values of general interest, cooperation and the distribution of power. Today, we are launching a national petition demanding that the Parliament legislate the new constitution. You can sign on: https://listar.island.is/Stydjum/nyjustjornarskrana Today at 10:15 am we will premier a new promotional video about the new Constitution, the process behind it and where it stopped. You can watch it here. Today at at noon, a group of women will meet in Mæðragarðurinn at Lækjargata and sing songs in honor of the new Constitution and Women's solidarity. You can see an event here. All of these are projects, created and lead by women who know that it is the nation that decides on its Constitution and places limits on those in power. Not the other way around! Women who are willing to use their powers in every possible and impossible way to make this dream come true. For, as the preamble of the new Constitution states: “We, the people of Iceland, wish to create a just society with equal opportunities for everyone. Our different origins enrich the whole, and together we are responsible for the heritage of the generations, the land and history, nature, language and culture. We do not intend to wait a whole decade for the new Constitution to come into effect, so we demand action immediately. The author is the chairman of the Women's Association of the New Constitution. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stjórnarskrá Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun