Ægir setti nýtt stoðsendingamet í bikarúrslitum i Höllinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2020 14:00 Ægir Þór Steinarsson bjó til 36 stig með sendingum sínum í Höllinni í gærkvöldi. Vísir/Bára
Stjörnumaðurinn Ægir Þór Steinarsson spilaði heldur betur uppi liðsfélaga sína í undanúrslitum Geysisbikarsins í gærkvöldi og setti um leið nýtt met í bikarúrslitum. Ægir Þór Steinarsson var með 15 stoðsendingar í 98-70 stórsigri Stjörnunnar á Tindastól í Laugardalshöllinni og bætti þar með gamla stoðsendingametið um tvær stoðsendingar. Ægir er því nú sá leikmaður sem hefur gefið flestar stoðsendingar í einum leik í bikarúrslitum í Laugardalshöllinni.PavelErmolinskij átti gamla metið en hann gaf 13 stoðsendingar í sigri KR á Breiðabliki í undanúrslitaleik í Laugardalshöllinni 10. janúar 2018.PavelErmolinskij á ennþá metið yfir flestar stoðsendingar í sjálfum bikarúrslitaleiknum en hann gaf 11 stoðsendingar í bikarúrslitaleik á móti Grindavík árið 2011. Pavel deilir þar metinu með þeim Arnari Frey Jónsson (með Grindavík 2010) og Eiríki Önundarsyni (með ÍR 2011). Uppspil Ægis hafði líka frábær áhrif á Stjörnuliðið sem vann þær 33 mínútur sem hann spilaði með 27 stigum. Hann var hæstur í plús og mínus í sínu liði. Ægir átti flestar stoðsendingar á þá NikolasTomsick og KyleJohnson eða fjórar á hvorn. Hann átti þrjár á Tómas Þórður Hilmarsson, tvær á Hlyn Bæringsson og eina á þá Arnþór Freyr Guðmundsson og Ágúst Angantýsson. Stjörnumenn skoruðu alls 36 stig eftir þessar fimmtán stoðsendingar frá Ægi en sex þeirra voru fyrir þriggja stiga skot.Flestar stoðsendingar í leik í bikarúrslitum i Laugardalshöllinni:(Tölfræði í bikarúrslitum hefur verið skráð frá árinu 1993) 15 - Ægir Þór Steinarsson, Stjörnunni (Undanúrslit 12.2.2020, á móti Tindastól) 13 - PavelErmolinskij, KR (Undanúrslit, 10.1.2018 á móti Breiðabliki) 11 - Eiríkur S Önundarson, ÍR (Bikarúrslitaleikur, 24.2.2001 á móti Hamri) 11 - Arnar Freyr Jónsson, Grindavík (Bikarúrslitaleikur, 20.2.2010 á móti Snæfelli) 11 - PavelErmolinskij, KR (Bikarúrslitaleikur, 19.2.2011 á móti Grindavík) 10 - Jakob Ö Sigurðarson, KR (Bikarúrslitaleikur, 15.2.2009 á móti Stjörnunni) 10 - Jón Kr Gíslason, Keflavík (Bikarúrslitaleikur, 6.2.1993 á móti Snæfelli) 10 - Justin Shouse, Stjarnan (Bikarúrslitaleikur, 21.2.2015 á móti KR) 10 - Justin Shouse, Snæfell (Bikarúrslitaleikur, 24.2.2008 á móti Fjölni)
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Handbolti „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ Handbolti Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Körfubolti Egyptaland - Ísland | Annar íslenskur sigur í Kaíró? Handbolti Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Kane sektaður en ekki settur í leikbann Körfubolti Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Fótbolti Heskey yngri tryggði City titil gegn United Enski boltinn „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Fótbolti Fleiri fréttir Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Kane sektaður en ekki settur í leikbann Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Baldur hættur í Garðabænum Sjá meira