Bjarni bendir Bjarna Ben á Bjarna Ben Jakob Bjarnar skrifar 11. febrúar 2020 13:56 Bjarni telur túlkun Bjarna Benediktssonar yngri á Mannréttindasáttmála Evrópu í engum takti við túlkun Bjarna Benediktssonar eldri.
Bjarni Már Magnússon lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík, telur ummæli Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins vegna Landréttarmálsins, athyglisverð. Formaður Sjálfstæðisflokksins vill taka vel utan um það að Hæstiréttur Íslands sé æðsti dómstóll landsins hverju sem tautar og raular í Mannréttindadómstóli í Strassborg: Bjarni Benediktsson segir að niðurstaðan í málinu muni ekki hafa bein réttaráhrif á Íslandi. Mannréttindasáttmálinn skuldbinding Bjarni Már segir áhugavert að bera þetta viðhorf saman við það sem Bjarni Benediktsson forsætisráðherra þjóðarinnar sagði fyrir 70 árum. Þá um Mannréttindasáttmála Evrópu og Mannréttindadómsstól Evrópu: „Og ef Ísland gerist endanlega aðili að þessum samning, þá verður landið ekki aðeins – eða ríkisvaldið – skuldbundið inn á við gagnvart sínum þegnum, heldur tekur það einnig á sig skuldbindingu gagnvart öðrum aðilum og öðrum réttarríkjum, sem eru aðilar að þessum samningi, til þess að halda þessum réttindum í heiðri og una þeim vissu viðurlögum, ef á móti þessum skuldbindingum verður brotið, þannig að ekki getur leikið á tveim tungum, að réttindin verða betur tryggð eftir en áður, ef Ísland gerist endanlega aðili að samningnum.“ Bjarni Már vill sem sagt benda Bjarna Benediktssyni á túlkun alnafna síns og forvera. Sem er skýr; „… þá verður landið ekki aðeins – eða ríkisvaldið – skuldbundið inn á við gagnvart sínum þegnum…“ En, þetta kemur fram í riti Þórdísar Ingadóttur: mannréttindasáttmáli Evrópu – Meginreglur, framkvæmd og áhrif á íslenskan rétt.Bjarni eldri var prófessor í lögum við Háskóla Íslands 1932-1940 og síðar heiðursdoktor. Hann gegndi embætti dóms- og menntamálaráðherra auk þess sem hann var forsætisráðherra 1961 og 1963-1970. Bjarni Már telur orð Bjarna yngri stangast á við þessi sjónarmið. Ekki má nota lög hvers lands sem skálkaskjól „Það er eitthvað sem gerist í íslenskri lögfræði eftir 1960 sem hefur ekki verið útskýrt. Í mjög grófum dráttum verður afstaðan til þess hvernig alþjóðlegar skuldbindingar spila saman við íslenskan rétt sífellt neikvæðari. Það vantar hjá flestum sem hafa skoðað þetta að liggja yfir frumgögnum langt aftur í tímann,“ segir Bjarni Már. En hann er með nokkra nemendur í að grafa upp gögn frá 1800 til dagsins í dag. „Það koma einhverjar afurðir út úr því.“ Bjarni Már segir jafnframt að í umræðu um tengsl lands- og þjóðaréttar gleymist eiginlega alltaf að minnast á 27. gr. Vínarsamningsins um milliríkjasamninga (sem endurspeglar þjóðréttarvenju). Það þykir mér alltaf nokkuð áhugavert: „Internal law and observance of treaties A party may not invoke the provisions of its internal law as justification for its failure to perform a treaty. This rule is without prejudice to article 46.“
Dómsmál Dómstólar Landsréttarmálið Tengdar fréttir Varð vandræðaleg af spurningum dómara í Landsréttarmálinu Mikill fjöldi Íslendinga var viðstaddur málflutninginn í Strassbourg. 5. febrúar 2020 14:03 Málflutningur í Landsréttarmálinu hefst í Strassborg í dag Málflutningur í Landsréttarmálinu hefst í yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu í Strassborg í Frakklandi klukkan 8:15 að íslenskum tíma. 5. febrúar 2020 08:05 Segir suma dómara yfirdeildar Mannréttindadómstólsins hafa haft áhyggjur af pólitískum afskiptum Kjartan Bjarni Björgvinsson, formaður dómarafélags Íslands, sat málsmeðferðina í Strassborg í dag. Hann segir athyglisverðasta þátt málsins vera spurningar dómara yfirdeildarinnar. 5. febrúar 2020 12:03 Sagði tímalínu „samsæriskenningar“ í Landsréttarmálinu ekki standast Munnlegur málflutningur fór fram í Landsréttarmálinu fyrir yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE) í morgun. 5. febrúar 2020 21:00 Sigríður segir skjóta skökku við að íslenski dómarinn endurmeti eigin dóm Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, gagnrýnir Mannréttindadómstólinn harðlega fyrir að hafa ekki skipt íslenska dómaranum við réttinn áður en málið var tekið upp við yfirrétt dómstólsins. 9. febrúar 2020 18:00 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira
Varð vandræðaleg af spurningum dómara í Landsréttarmálinu Mikill fjöldi Íslendinga var viðstaddur málflutninginn í Strassbourg. 5. febrúar 2020 14:03
Málflutningur í Landsréttarmálinu hefst í Strassborg í dag Málflutningur í Landsréttarmálinu hefst í yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu í Strassborg í Frakklandi klukkan 8:15 að íslenskum tíma. 5. febrúar 2020 08:05
Segir suma dómara yfirdeildar Mannréttindadómstólsins hafa haft áhyggjur af pólitískum afskiptum Kjartan Bjarni Björgvinsson, formaður dómarafélags Íslands, sat málsmeðferðina í Strassborg í dag. Hann segir athyglisverðasta þátt málsins vera spurningar dómara yfirdeildarinnar. 5. febrúar 2020 12:03
Sagði tímalínu „samsæriskenningar“ í Landsréttarmálinu ekki standast Munnlegur málflutningur fór fram í Landsréttarmálinu fyrir yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE) í morgun. 5. febrúar 2020 21:00
Sigríður segir skjóta skökku við að íslenski dómarinn endurmeti eigin dóm Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, gagnrýnir Mannréttindadómstólinn harðlega fyrir að hafa ekki skipt íslenska dómaranum við réttinn áður en málið var tekið upp við yfirrétt dómstólsins. 9. febrúar 2020 18:00