Vopnað rán hjá úrsmið í Reykjanesbæ Kristín Ólafsdóttir skrifar 20. febrúar 2020 13:10 Versluninni var lokað í kjölfarið. Vísir/Egill
Gerð var tilraun til vopnaðs ráns hjá úrsmiðnum Georg V. Hannah í Reykjanesbæ um klukkan hálfeitt í dag. Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, staðfestir að vopnað rán hafi verið framið í verslun í bænum. Hann vill ekki tjá sig frekar um málið en samkvæmt upplýsingum Vísis var karlmaður handtekinn á staðnum. Mun ræninginn hafa verið vopnaður öxi og greinilega í annarlegu ástandi að sögn vitna. Braut hann og bramlaði í versluninni og eru glerborð mölbrotin sem hafa úr og annan dýran búnað til sýnis. Sá sem svaraði í síma verslunarinnar vildi engar upplýsingar veita um málið þegar Vísir leitaði eftir því. Verslunin fagnaði fimmtíu ára afmæli árið 2018.Vísir/Egill Ræninginn mun vera ungur karlmaður, líklega á þrítugsaldri. Úrsmiðirnir vildu ekkert tjá sig um ránið þegar eftir því var leitað. Búðin fagnaði fimmtíu ára afmæli árið 2018. Fréttamaður hjá Víkurfréttum var á vettvangi skömmu eftir að ránið var framið. Fréttin hefur verið uppfærð með þeim upplýsingum frá lögreglu að ræninginn var vopnaður öxi en ekki hamri.
Lögreglumál Reykjanesbær Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira